Author Topic: Íslandsmót í tímaati 2017 - 3. umferð  (Read 2105 times)

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
Íslandsmót í tímaati 2017 - 3. umferð
« on: August 05, 2017, 12:57:37 »
Sunnudaginn 20 ágúst fer fram önnur umferð íslandsmótsins í tímaati á kvartmílubrautinni

Skráningu lýkur fimmtudaginn 17. ágúst kl 23:00
Seinni skráning verður leyfð til laugardagsins 19. ágúst kl. 16:00

Til að taka þátt þarftu að hafa:
Gilt ökuskírteini
Skoðað ökutæki
Hjálm
Vera meðlimur í akstursíþróttarklúbb innan AKÍS/MSÍ
Skráð ökutæki þurfa vátryggingarviðauka

Keppnistæki:
Öll keppnistæki skulu vera skoðuð og á númerum nema í opnum flokki.
Allar tegundir af eldsneyti eru leyfðar.

Reglur fyrir bíla:
http://www.akis.is/wp-content/uploads/2017/03/T%C3%ADmaat-kappakstur.pdf

Reglur fyrir mótorhjól:
http://msisport.is/content/files/public/reglur_2016/Reglur_fyrir_timaat_og_kappakstur.pdf

Keppnisfyrirkomulag í tímaati.
Ræsir skal ræsa keppendur út úr pitti með meira en 10 sekúndna millibili. Lengd brautar ræður hve margir bílar eru á brautinni samtímis. Ef fleiri keppendur eru í flokki en þeir sem komast á brautina samtímis skal skipt í eins marga riðla og þörf er á.
Keppnin skiptist í æfingu og þrjár lotur í hverjum flokki. Æfing (15 mínútur), undanrásir (15 mínútur), niðurskurður (10 mínútur) og úrslit (8 mínútur). Lágmarks kælitími á milli lotna skal vera 15 mínútur. Allir keppendur keppa í undanrásum, sá helmingur (námunda skal upp í næstu sléttu tölu) keppenda sem nær bestum tíma keppir í niðurskurði og þrír hröðustu keppendur í úrslitum. Ef keppendur eru færri en 8 í flokki skal sleppa niðurskurði í undanrásum. Í undanrásum ræður keppnisstjóri rásröð. Í niðurskurði og úrslitum er sá keppandi sem er með besta tímann í lotunni á undan ræstur fyrst, svo sá sem er með næst besta og svo framvegis.

Flokkar fyrir bíla:
Hot wheels
Götubílar
Breyttir götubílar
Opinn götubílaflokkur
Opinn flokkur kappakstursbíla

Flokkar fyrir mótorhjól
Moto 3+ (M3)
Moto 4½ (M4)
Rookie 600 (R)
Supersport (SS)
Superbike (SB)
Supermoto (SM)

Skráningarfrestur.
Skráningu lýkur fimmtudaginn 17. ágúst kl. 23:00
Seinni skráning verður leyfð til laugardagsins 19. ágúst kl. 16:00 en þá bætast 2.000 kr. við skráningargjaldið

Keppnisgjöld og skráning:
ATH!! skráning telst ekki gild fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd
Keppnisgjald 6.000 kr. innifalið er keppnisskírteini
Við fyrstu skráningu keppenda á bílum á keppnistímabili bætast við 4.000 kr. gjald vegna slysatrygginga ökumanns.

Skráning bíla á AKÍS síðunni:
http://skraning.akis.is/keppni/73

Skráning mótorhjóla fer fram í þessum tengli:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSf_uvP7VwxiaveoBfTGNquSHW6Q6SMnt_WdoHgmY2yuoOTc4g/viewform?usp=sf_link

Dagskrá
Mæting 11:00 - 11:30
Skoðun 11:15- 11:45
Keppendafundur 11:45
Æfing 12:00 - 13:00
Keppni 14:00 - 17:30

Nánari upplýsingar
í síma 8473217 eða jonbjarni@kvartmila.isKeppni til íslandsmeistara í tímaati
« Last Edit: August 11, 2017, 19:39:03 by SPRSNK »

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
Re: Íslandsmót í tímaati 2017 - 3. umferð
« Reply #1 on: August 11, 2017, 19:39:45 »
Íslandsmót í kvartmílu 3. umferð 2017
Keppendalisti:

Mótorhjól B flokkur
Guðvarður Jónsson
Arnór H Karlsson
Grímur Helguson
Birgir Þór Kristinsson

Mótorhjól G- flokkur
Ragnar Á Einarsson
Jóhann Sigurjónsson
Grímur Helguson

Mótorhjól G+ flokkur
Jón H Eyþórsson
Sigmar Lárusson
Halldóra Sigurðardóttir
Hilmar Þór Magnússon
Ólafur Ragnar Ólafsson
Davíð Þór Einarsson

Bílar OF flokkur
Harry Þór Hólmgeirsson
Auðunn H Herlufsen
Magnús Aðalvíkingur Finnbjörnsson
Leifur Rósinbergsson

Bílar ST flokkur
Símon Helgi Wiium
Ingimar Baldvinsson
Ólafur Uni Karlsson
Ólafur Kjartansson

Bílar TS flokkur
Hilmar Jacobsen
Smári Helgason
Svanur Vilhjalmsson
Einar Sindrason

Bílar GF flokkur
Þórður Tómasson

Bílar Bracket flokkur
Ásta Sigríður Stefánsdóttir