Author Topic: Íslandsmót í götuspyrnu - 3. umferð 2017  (Read 2828 times)

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
Íslandsmót í götuspyrnu - 3. umferð 2017
« on: July 04, 2017, 11:02:34 »
Laugardaginn 15. júlí fer fram þriðja umferð íslandsmótsins í götuspyrnu 2017
Fyrri skráningu lýkur miðvikudaginn 12. júlí kl. 22:00, en seinni skráningu lýkur föstudaginn 14. júlí kl. 16:00

Til að taka þátt þarftu að hafa:
Gilt ökuskírteini
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur í akstursíþróttarklúbb innan AKÍS/MSÍ
Skráð ökutæki þurfa vátryggingarviðauka
Ökutæki skal vera á númerum og fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð.
Ökutæki skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað.
Hjólbarðar skulu vera götulöglegir og DOT merktir.
Hjólbarðar framan/aftan skulu vera sömu gerðar þ.e. radial/radial eða diagonal/diagonal

Keppnisfyrirkomulag
Áttungsmíla, Pro tree, second chance.

Þeir flokkar sem í boði fyrir bíla eru eru:
Bílar 4cyl (4) 1. Bílar með hámark 4 stokka vél eða Wänkel vél og drif á einum ás.
Bílar 6cyl (6) 1. Bílar með hámark 6 stokka vél og drif á einum ás.
Bílar 8cyl+ (8) 1. Bílar með 8 til 12 strokka vél og drif á einum ás.
Bílar 8cyl Standard (S) 1. Bílar með hámark 8 strokka vél og drif á einum ás. 2. Allir aflaukar (poweradder) bannaðir. Þ.e. blásarar, túrbínur, nítró o.þ.h. 3. Aðeins true radial dekk leifð. Slikkar bannaðir, bæði diagonal og drag radial.
Bílar 4x4 (X) 1. Bílar með drif á tveimur ásum.
Jeppaflokkur (J) 1. Jeppar og pallbílar. 2. Virkt fjórhjóladrif skal vera til staðar í bílum skráðum undir 2000 kg.

Skráningarfrestur.
Formlegri skráningu lýkur miðvikudaginn 12. júlí kl. 22:00
Seinni skráning verður leyfð til föstudagsins 14. júlí kl. 16:00 en þá bætast 2.000 kr. við skráningargjaldið

Keppnisgjöld og skráning:
ATH!! skráning telst ekki gild fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd
Keppnisgjald 6.000 kr. innifalið er keppnisskírteini
Við fyrstu skráningu keppenda á bílum á keppnistímabili bætast við 4.000 kr. gjald vegna slysatrygginga ökumanns.

Skráning bíla á AKÍS síðunni:
http://skraning.akis.is/keppni/66

Skráning mótorhjóla fer fram í þessum tengli:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSdhR9QQTyqwbR2dcz7Z9XFAtT3NqI8HSxv-StAGtX4bVrZuuw/viewform?usp=sf_link

Dagskrá:
10:00 Mæting keppanda
10:00 Skoðun hefst
10:30 Pittur lokar
11:00 Skoðun lýkur
11:10 Fundur með keppendum
11:30 Æfingarferðir hefjast
12:20 Æfingarferðum lýkur
12:30 Tímatökur hefjast
13:30 Tímatökum lýkur
13:50 Keppendur mættir við sín tæki
14:00 Keppni hefst
16:00 Keppni lýkur - Kærufrestur hefst
16:30 Kærufrestur liðinn
17:00 Verðlaunaafhending á pallinum

Nánari upplýsingar
í síma 8473217 eða í E-maili: jonbjarni@kvartmila.is
Jón Bjarni