Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur
Bikarmót í kvartmílu - METADAGUR 17. september 2016
SPRSNK:
Laugardaginn 17. september 2016 fer fram bikarmót í kvartmílu - METADAGUR
Keppnisfyrirkomulag:
Aðalkeppni
Keyrð verður ¼ míla á full tree
Keppt verður í 2 flokkum, bílar og mótorhjól
Keyrð verður sameiginleg tímataka og æfing sem mun standa í 3,5 klst. Eftir að tímatökum lýkur verður keppni keyrð með second chance fyrirkomulagi. Keppt verður í bracket þar sem besti tíminn úr tímatökum verður fastur kennitími hjá keppendum. Leyfilegt er að fara undir kennitíma í keppninni. Sá sigrar ferðina sem er næstur sínum kennitíma.
Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu 3 sætin í báðum flokkum
Hraðkeppni
Keyrð verður 1/8 míla á pro tree
Keppt verður í 2 flokkum, bílar og mótorhjól
Besti 1/8 tími út tímatökum raðar keppendum í sæti. Keyrt verður second chance fyrirkomulag
Verðlaun verða veitt sigurvegara í hvorum flokk
Verðlaun verða veitt fyrir besta viðbragð dagsins, fyrir það að vera næst sínum kennitíma í keppninni og mestu bætingu á sínum besta tíma.
Til að taka þátt þarftu að hafa:
Gilt ökuskírteini
Skoðaðan bíl/mótorhjól
Hjálm
Vera meðlimur í akstursíþróttarklúbb innan AKÍS eða MSÍ
Skráð ökutæki þurfa vátryggingarviðauka en óskráð keppnistæki þurfa að vera með tryggingar
Skráningarfrestur.
Formlegri skráningu lýkur föstudaginn 16. september kl. 22:00
Keppnisgjald:
Skráning telst ekki gild fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd
Bílar: Keppnisgjald 7.000 kr., innifalið er keppnisskírteni
Mótorhjól: Keppnisgjald 6.000 kr., innifalið er keppnisskírteni
Keppnisgjöld er hægt að greiða á tvo vegu:
Annarsvegar kaupa keppnisgjaldið í gegnum vefverslunina okkar eða leggja inn á klúbbinn. Vefverslun - ttp://kvartmila.is/is/vorur
Reikningsnúmerið er: 0544-26-111199 Kennitala: 660990-1199
Vinsamlegast setjið kennitölu keppanda með í skýringu
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast fylltu út eftirfarandi form:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSdy4iI_ihk9Dqfdscboyt2cZX2s18mRK_MgOp6c2RIUSxBeMQ/viewform
Ef vandamál koma upp með skráningu, vinsamlegast hafðu samband við undirritaðan.
Dagskrá:
10:00 Mæting keppanda
10:00 Skoðun hefst
10:30 Pittur lokar
11:00 Skoðun lýkur
11:10 Fundur með keppendum
11:20 Tímatökur hefjast
14:50 Tímatökum lýkur
15:20 Keppendur mættir við sín tæki
15:30 Aðalkeppni hefst
17:00 Aðalkeppni lýkur
17:05 Hraðkeppni hefst
17:25 Hraðkeppni lýkur
17:30 Verðlaunaafhending á pallinum
Nánari upplýsingar í síma 8473217 eða í E-maili: jonbjarni@kvartmila.is
https://www.facebook.com/events/186019718397699/
Kristján Skjóldal:
sælir. hvernig er það nú langar mér svolítið að mæta með Blossa á þessa keppni. svona bara til að leika. þarf að skrá sig í keppni eða verða líka æfingar þarna ? sem sagt get ég komið og farið nokkar bara æfingar ferðir og þá helst bara 1/8 ????
SPRSNK:
Skráningarform í keppnina:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSdy4iI_ihk9Dqfdscboyt2cZX2s18mRK_MgOp6c2RIUSxBeMQ/viewform
SPRSNK:
--- Quote from: Kristján Skjóldal on September 07, 2016, 22:03:07 ---sælir. hvernig er það nú langar mér svolítið að mæta með Blossa á þessa keppni. svona bara til að leika. þarf að skrá sig í keppni eða verða líka æfingar þarna ? sem sagt get ég komið og farið nokkar bara æfingar ferðir og þá helst bara 1/8 ????
--- End quote ---
Endilega láttu sjá þig hér fyrir sunnan.
Það verður keyrð kvartmíla - full tree í tímatökum sem standa frá kl. 11:20 - 14:50
Þennan tima er hægt að nota fyrir æfingar og keyra þá vegalengd sem hentar.
Keppni hefst kl 15:30 - kvartmíla / kennitimi
Hraðkeppni hefst 17:05 - 1/8 míla - (enginn kælitími)
Kristján Skjóldal:
snild ég skoða þetta . mér langar svo að prufa bikið smá \:D/
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version