Klúbburinn þakkar keppendum fyrir góða og drengilega íslandsmótskeppnir í dag.
Þá þökkum við sjálfboðaliðum fyrir að gera okkur kleyft að halda svona flottan dag.
Mjög margir fóru sínar bestu ferðir í dag og lofar það góðu fyrir framhaldið í sportinu.
Aðstæður er orðnar frábærar og trakkið í brautinni aldrei verið betra.
Áhorfendur fengu góða skemmtun og flottar ferðir.
Þá megum við ekki gleyma myndasmiðunum sem skrásetja kvartmílusöguna með ljósmyndum og videó.
B&B Kristinssynir, Jakob C og Mótorhaus TV voru á svæðinu í dag og fjöldi annarra snillinga.
Sumarið er ekki búið - nú taka við æfingar á brautinni fram á vetur.