Sæll Stefán
Get tekið undir flest af því sem þú segir. Þú sérð nú hvernig menn láta, menn kallaðir, viðrini og skemmd epli sem þarf að henda o.sfrv. Höfum reyndar heyrt þetta allt mörgum sinnum áður frá þessum aðila.
Það eina sem mér gekk til með mínum skrifum var að reyna að blása smá eldmóði í stjórnarmenn hvað varðar starfsemi á brautinni. Ég hrósaði starfsmönnum og geri enn og hef alltaf gert. Hef unnið mikið á undanförnum árum fyrir KK. Var einnig stofnaðili KK, 6.júní 1975 og veit alveg um hvað þetta snýst. Margt gott hefur verið gert á brautinni og er enn verið að gera, en að mega ekki tjá sig í friði fyrir svona einstaklingi er nú ekki það sem þessi klúbbur þarf á að halda.
En ég ætla ekki að standa í orðaskaki við þennan aðila sem virðist alltaf falla í þennan fúla pitt að grípa til persónulegs skítkasts og virðist dafna vel á því eins og púkinn á fjósbitanum. Hefur verið í þessum gír í c.a. einn og hálfan áratug gagnvart mér og mínum félögum. Veit reyndar ekki ástæðuna en læt það liggja á milli hluta.
Læta þetta nægja í bili af minni hálfu og hef ekki meira um málið að segja.
kv.
Rúdólf