Author Topic: Skráning í 3. og síðustu umferð í sandspyrnu hafin!  (Read 2057 times)

Offline Bílaklúbbur Akureyrar

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 125
    • View Profile
    • Bílaklúbbur Akureyrar
Skráning í þriðju umferð Íslandsmeistaramótsins í sandspyrnu sem fram fer á Akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar Sunnudaginn 4. ágúst n.k. er nú hafin.
Skráning fer fram í tölvupósti á netfanginu kristjan@ba.is og lýkur skráningu mánudaginn 29. Júlí kl. 23:59.-

ATH! Við höfum víxlað keppnum frá útgefnu dagatali og ætlum að hafa sandspyrnu á sunnudeginum í stað laugardags með möguleika á annari víxlun vegna veðurs!
þetta er eingöngu gert til að reyna að tryggja það að við fáum þurran dag til að keyra á malbiki og vonandi sýna keppendur og áhorfendur því skilning


Það sem koma þarf fram við skráningu er:
Nafn ökumanns og kennitala,
Símanúmer
gerð ökutækis
og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb.
Ath að öll tæki sem eru götuskráð þurfa að framvísa tryggingaviðauka.
Og að keppendur á bílum verða að hafa keppnisskírteini frá AKÍS.

Upplýsingar um reglur Íslandsmótsins í sandspyrnu má finna á https://docs.google.com/file/d/0BxxH6TxMkJuoQnJ5QTZ5N2l0UkU/edit?pli=1
og http://www.asisport.is/log-og-reglur/spyrna/

Upplýsingar um reglur fyrir Hjól og sleða má finna á http://www.kvartmila.is/skrar/file/Ymislegt/SpyrnureglurMSI.pdf 


Keppnisgjald er krónur 5. þúsund og skal greiðast inn á reikning 565-26-580 kt. 660280-0149.
ATH að setja kennitölu keppanda í skýringu ef að annar greiðir en keppandi sjálfur og að setja v/Sandur eða v/Gata eftir því sem við á

Keppendur á hjólum og sleðum greiða 1þúsund krónur til MSÍ sem að greiðist með keppnisgjaldi.
Vinsamlegast athugið að skráning telst ekki gild nema keppnisgjald sé greitt áður en skráningu lýkur.

F.h. Spyrnudeildar Bílaklúbbs Akureyrar

Kristján Valbergsson
kristjan@ba.is

Offline Bílaklúbbur Akureyrar

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 125
    • View Profile
    • Bílaklúbbur Akureyrar
Re: Skráning í 3. og síðustu umferð í sandspyrnu hafin!
« Reply #1 on: July 30, 2013, 16:40:53 »
Vegna ónógrar þáttöku í Sandspyrnu sem halda átti á Sunnudag 04.08 hefur verið tekin ákvörðun um að fresta keppninni fram á Helgina 17-18 Ágúst ( Sömu helgi og Greifatorfæran fer fram )
Nánari tímasetning verður sett í loftið síðar.
Opnað hefur verið fyrir skráningu aftur og mun hún standa opinn til Mánudags 12.08 kl 23.59
Skráning er hér http://spjall.ba.is/index.php?topic=6485.0
Þeir sem þegar eru skráðir þurfa ekki að skrá sig aftur.