Skráning er nú hafin í fyrstu umferð Íslandsmótsins í sandspyrnu en keppnin fer fram í landi Garðs við Sauðárkrók laugardaginn 22 júní kl 13.00.
Kaffi Króks Sandspyrnan 2013
Það er Bílaklúbbur Skagafjarðar sem heldur þessa keppni í samstarfi við Bílaklúbb Akureyrar.
Skráning fer fram í tölvupósti á netfanginu
rally@fjolnet.is og það sem koma þarf fram við skráningu er:
Nafn ökumanns og kennitala, gerð ökutækis og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb.Ath að allir bílar sem eru götuskráðir þurfa að framvísa tryggingaviðauka.
Skráningu lýkur miðvikudaginn 19. júni kl. 23:59
Keppnisgjald er 5000.- kr og skal greiðast inn á reikningr:
310-26-2360 Kt. 520601-2360 vinsamlegast sendið staðfestngu á
rally@fjolnet.is .
Vinsamlegast athugið að skráning telst ekki gild nema keppnisgjald sé greitt áður en skráningu lýkur
Upplýsingar um reglur Íslandsmótsins í sandspyrnu má finna á
https://docs.google.com/file/d/0BxxH6TxMkJuoQnJ5QTZ5N2l0UkU/edit?pli=1www.bks.is er opinber upplýsingatafla keppninnar
Keppnistjóri er Þórður Guðni Ingvason
F.h. Bílaklúbbs Skagafjarðar
Þórður Guðni Ingvason Formaður BS s:6984342 eða
malverk@fjolnet.is