Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
Hiclone
eva racing:
Sko.
Svona trikk hafa komið fram frá fyrstu dögum "bullumótora" og þá oftast frá einhverjum bullukollum. Í fyrsta lagi, hvernig haldið þið að það sé enn snúningur á loftinu þegar það er komið 2-3 fet frá þessum "tæknibúnaði". Gegnum þrengra rör eftir krókóttum leiðum að sog ventli. Að ég tali ekki um ef loftið er búið að fara í gegnum túrbínu sem er náttúrlega ein stór lofthrærivél,. Hvort loftið snéri til vinstri eða hægri verður ekki merkjanlegt eftir það ferðalag.
Það gæti verið til bóta að vera með svona búnað ca 20 millimetra frá sogventli og þá þyrfti loftið að snúast rétt til að auka "skolun og fyllingu vélarinnar.
Ekki einusinni horfa á svona, Það er nokkuð öruggt að þetta væri staðalbúnaður í öllum farartækjum ef þetta virkaði. Ef þið ætlið að setja K&N loftsíu til að auka flæðið að vélinni. Hvers vegna viljið þið þá setja svona til að tefja það aftur.???
Ef þið viljið meira power og minni eyðslu skiftið þá úr coke í pepsi max.
Eða í alvöru takið allar barka hosur sem er við sogkerfi vélarinnar og setjið sléttar hosur og eða rör í staðinn setjið púst sem er "mandrel" beygt þ.e. rörið ekki þrengt í beygjum oftast er sverleikinn nóg en beygjur eru vondar og samsetningar ef um V eða boxer vélar er að ræða.
Annars ætlaði ég ekki að missa mig á flug í einhverjum heilræðum það er nóg af fólki til þess..... Lifið heil, (eða þannig)
Valur Vífilss. agndofa
Kiddi:
Ég get skilið að menn trúi þessu ekki við fyrstu kynni :?
Þetta hefur margsannað sig... og Valur í flestum tilfellum eru það ekki 2-3 fet frá plötunni (hiclone-inu)... Þetta er sett í 15-20 cm fjarlægð minni mig frá throttle boddy-inu á EFI ottóvélum og snýr loftinu (eins og hvirfilbylur) niður í sprengihólfin... auðvitað taka mótorar þessu misvel en það er talað um upp til 15% aflaukningu, upp að 20% minni eyðslu og betri hægagangur.
Talandi um túrbínuna þá er þetta sett fyrir aftan hana þ.e. þegar loftið er á leiðinni inn á soggreinina...
Ef mönnum finnst þetta ekki vera að gera neitt nema ræna þá peningum þá geta þeir skilað þessu (money back guarantee).. Þessi ágæti búnaður hefur til viðbótar verið viðurkenndur og verðlaunaður, þess má geta að þetta er orðin gömul hönnun þ.e. síðan um 1990 þegar þetta kom fyrst fram á sjónarsviðið.
Kiddi, agndofa á Vali Vífils. :wink:
baldur:
Ein árgerðin af Dodge 4cyl turbo bílunum var með svona, þá var throttle boddyið fyrir framan túrbínuna og túrbínan boltaðist beint við soggreinina, og þar var eitthvað svona sigti til þess að STOPPA snúninginn á loftinu eftir að það kemur útúr túrbínunni á hörkusnúningi.
eva racing:
Kæru félagar.
Takk fyrir að opna augu mín og annarra fyrir þessu þarfaþingi. Og sé ég nú hvurslags villu maður er búinn að vaða að vera að porta og pólera sog greinar og sogport einsog vitlaus maður(sem ég augsýnilega er) þegar ég hefði átt að matta þau og setja fasta viftuspaða til að loftið skrúfist framhjá ventlonum og þjappi sér svo saman í strokkum mótorsins sem ég fékk hjá Ottó gamla. Ég ætla samt að biðja ykkur um að vera ekki að flagga þessu svo ódælir menn einsog Einar Birgis. komist ekki að þessu og setji svona dúsin af viftuspöðum (eða lofthvirflum eða hvað sem íslenskt orð er) í vélina hjá sér, hendi nitrókútnum og dóli svo í 8,40 og spari 20% bensín á öllu saman. Það væri ljóti ófögnuðurinn.
Að maður tali ekki um ef GM kallinn sjálfur kæmist að þessu, Og gæti hækkað hp um nokkra tugi og haft varanleg áhrif á olíuframleiðsluna í heiminum.
Og ekki skánaði það ef keppnismenn hefðu upp á þessu. Þar eru menn sem myndu skera af sér vinstri hendi fyrir 2-3% meira afl að maður tali ekki um 15% aflaukningu.
Það er vissulega tími til kominn að einhver með þekkingu og opinn huga (sem ég hef víst ekki) geti tendrað ljósið fyrir okkur hina.
Ef ég hefði ekki fengið þetta ágæta svar hefði ég kannski haldið þetta áfram, og svarað þessu einhvernvegin svona.:
Þessar loftskrúfur eru ekki að koma fram á sjónarsviðið nú eða fyrir 14 árum, heldur hefur þetta sést af og tilí mörg ár. Ég held að ég muni það rétt að ég hafi fyrst séð svona búnað í 1958-9 Hot rod hjá kunningja mínum sem er fornbílastrumpur, og hann taldi að þetta væri mun eldra. síðan einhvernsstaðar á milli heimstyrjalda.
Það eru allskonar patent sem eru að koma aftur og aftur (einsog keðjubréf þar sem allir verða ríkir) T.d. koma alltaf upp "fjölpóla kerti" sem "news flash" þó T mótelið af ford (viljandi með litlum stöfum) hafi verið með svoleiðis búnað. Þær ágætu bifreiðar (líka með hreyfiafl frá Ottó) voru líka með eitt háspennukefli á strokk (þó margir haldi að SAAB hafi fundið það upp 198?)
Með þökk fyrir ágætt svar og von um meira gott.
Valur Vífilss. í góðum gír (hlutlausum)
Racer:
ég trúi þessu ekki fyrr en ég sé dynó test af þessu fyrir og eftir og það innan við 45 mín og auðvita allt tekið uppá videó með tímasetningu í gangi.
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version