Ég keypti verksmiðjuuppgerðann high tork Delco startara hjá Bílaraf árið 1996. Gamli startarinn þoldi nefnilega flækjurnar illa (og var orðin ansi gamall).
Startarinn er þá orðinn 8 ára og þolir hita mjög vel. Eina sem hefur klikkað er að bendix brotnaði hjá mér einu sinni í ca. 20 stiga frosti, en hann kostaði smápeninga.
Í þriðju kynslóðar Transam er ég einnig með einn slíkann (var í bílnum þegar ég keypti hann 1997-98) og eins og flestir vita þá er hitinn mikill í þeim húddum (mjög lokað). Hann hefur aldrei klikkað.
Þú ættir því að athuga hjá hvað startararnir kosta hjá Bílaraf (og ekki afskrifa Delco startara), en þegar ég keypti einn slíkann þá var hann á innan við 10.000 (eflaust töluvert meira í dag).
Kv. Jón H.