Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
Chevrolet S10 - LS1/T56
JónBragi:
Takk fyrir það og þetta er alvöru eltingaleikur þarna, næsta mynd sem ég tek mig til að horfa á verður pottþétt þessi!
En ég fór upp á braut í dag og það gekk bara ekkert upp hjá mér, á best 13,1 á 108,9 mílum en fór best í dag 13,5 á 105 mílum.
Þetta byrjaði skelfilega og ég náði varla neinu trakki, keyrði nokkrar 15 sekúndna ferðir þangað til að ég gafst upp og náði í drasl til að setja á pallinn en hef verið of graður og setti 260 kg á pallinn og það hjálpaði alveg í startinu en endahraðinn var ekki nægur.
En svo er ég náttúrulega ennþá að læra inn á bílinn og brautina, eins og kannski sást í dag......
Kowalski:
Snilldin ein þessi bíll. =D>
palmisæ:
Sama hversu oft maður sér hann þá slefar maður alltaf jafn mikið :) Ekkert smá heppnaður bíl hjá þér
Camaro-Girl:
--- Quote from: palmisæ on August 20, 2012, 21:15:35 ---Sama hversu oft maður sér hann þá slefar maður alltaf jafn mikið :) Ekkert smá heppnaður bíl hjá þér
--- End quote ---
ÁmK Racing:
Þessi bíll er svo svalur hjá þér að hann er hrímaður.Til hamingju með tækið :D
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version