Nú er sumarið alveg að koma, kreppan búin (skv. Ólínu Þ.) og margir
farnir að spyrja hvenær Hr. X komi.
Svarið er: Í byrjun júní.
Hann semsagt mætir til að mappa, delimita og hvaðeina sem menn vilja
láta krukka í mótortölvunni. Gríðarlega vinsælt að láta kreista meira
úr dísilbílum
Dæmi:
- eldsneytis og kveikjumöppun eftir breytingar
- eldsneytis og kveikjumöppun á stock bíl til að auka afl
- hraðatakmarkari fjarlægður
- rev limit hækkað
- launch control (E39 M5)
- full throttle shifting (E39 M5)
- "sport" stilling helst inni þótt drepið sé á bílnum (E39 M5)
Verðið er 500 evrur (*) ef vinnan er undir 4 tímum en ef svo ólíklega vill
til að þetta taki meira þá er hver auka klukkutími á 100 evrur. Það
má geta þess að það er í algjörum undantekningartilfellum sem vinnan
fer yfir 4 tíma og ef það gerist er það venjulega út af því að einhver
bilun er fyrir í bílnum.
Hvernig gengur þetta fyrir sig?
1. Senda póst á
rngtoy@rngtoy.com2. Pósturinn þarf að innihalda nafn og símanúmer eiganda, upplýsingar um
bílinn (tegund, árgerð, vél, breytingar ef einhverjar eru).
3. Ég safna saman lista og sendi á kallinn og hann segir til um hvað er hægt að gera.
Þegar þetta er komið á hreint borga menn staðfestingargjald sem
er 100 evrur og fæst ekki endurgreitt nema að Hr. X mæti ekki.
Þegar menn eru búnir að borga staðfestingargjaldið er hægt að
fara að bóka flug og negla dagsetningar endanlega.
Þannig að ef menn hafa áhuga - sendið póst á
rngtoy@rngtoy.com - EKKI EP.
Það hefur verið mikil ánægja með vinnuna hjá karlinum hingað til
Hér eru nokkrar myndir frá fyrri heimsóknum:




(*) Ath geta verið undantekningar með mjög nýlega & advanced bíla.