Sælir,
Við höfum flutt félagsfundina á þriðjudaga, stjórnin fundar á þriðjudögum núna þar sem hluti stjórnarmeðlima er mjög upptekinn á fimmtudögum
og það er svoldið atriði að félagsmenn geti hitt stjórnarmeðlimi og fengið upplýsingar ofl finnst okkur.
Einnig eru fimmtudagar orðnir miklir bíladagar og margir að rúnta og slíkt á þeim dögum svo okkur langar að prufa þriðjudagana.
Stjórnin fundar 1-2 í mánuði yfirleitt og við munum tilkynna á hvaða fundum við verðum með stjórnarfundi, þeim líkur yfirleitt um 22:00
og þá erum við klárir í spjall.
Eins og vanalega fækkar fundum eitthvað yfir sumartímann en það verður allt tilkynnt hér á spjallinu hvort það eru fundir eða ekki.
Kv.Stjórnin.