ég fór og skoðaði svartann 1985 camaro z28 í hafnarfirði í haust sem hafði staðið inní skúr síðan 2005 eða 2003 og búinn að vera í eigu sömu fjölskyldunar enþá lengur.
það var ógangfær 350 í honum, fólkið sagði að það þyrfti að skipta um kveikju en að hún fylgdi með og sýndu mér "kveikjuna" sem átti að fylgja með en það sem þau sýndu mér var í raun blöndungur sem þau reyndu að fullvissa mig um að væri kveikjan sem þyrfti að henda í til að laga mótorinn
,
annars var í honum beinskipting, svart leður, rafmagn í sætum, rúðum og speglum(það var talað um að þetta væri eitthver spes delux týpa þó ég muni ekki eftir að það hfai nokkurntíman verið framleid sitthver spes "delúx" útgáfa af camaro) , svo var hann ekki með t topp og boddýið orðið soldið sjúskað, komið smá riðgat í afturbrettið og fyrir ofan hliðarrúðuna, ryðbólur og rispur útum allt, gat í gólfinu, dekkin búin að standa loftlaus lengi.
þau voru tilbúin að láta hann á 350-400þús, ég bauð þeim 250þús sem þau afþökkuðu pent og fullyrtu að bara mótorinn væri hægt að selja á nálægt miljón, þá labbaði ég bara í burtu að gleymdi þessu, hann hafði verið auglýstur á bland ef ég man rétt, var í slæmu ástandi en hafði augljóslega verið ótrúlega flottur bíll, svartur, beinskitur, með 350 merktan edelbrock í bak og fyrir eflaust frekar sprækann, 3" púst, svart leður og rafmagn í öllu.
ég veit ekki hvort hann seldist eða hvort að hann er enþá þarna En ég hef aldrei lesið neitt á netinu um þennan bíl eða nokkurn líkan honum á íslandi, númerið á honum byrjaði á M eitthvaðeitthvaðeitthvað, einhver hlýtur að vita eitthvað meira um hann