Kvartmílan > Aðstoð
Hljóðkútar ?
Kristján Stefánsson:
Takk kærlega fyrir aðstoðina drengir, ég fer í málið í næstu viku.
Takk fyrir mig :)
Hr.Cummins:
Ef að það er ekki X-Pipe eða H-Pipe þá getur það munað SLATTA :!:
íbbiM:
getur ekki verið ves að vera með x eða H pípu á 4wd bíl, taka rörið undir skaptið og flr
já sá cherrybomb kúta um daginn í benna á fínu verði. (að mig minnir)
ég hef mætt þér nokkrum sinnum meðan ég er hjóla rvk-hfj og það er nú ekki það mikill hávaði í þessu
Hr.Cummins:
--- Quote from: íbbiM on December 09, 2011, 17:54:51 ---getur ekki verið ves að vera með x eða H pípu á 4wd bíl, taka rörið undir skaptið og flr
já sá cherrybomb kúta um daginn í benna á fínu verði. (að mig minnir)
ég hef mætt þér nokkrum sinnum meðan ég er hjóla rvk-hfj og það er nú ekki það mikill hávaði í þessu
--- End quote ---
H pipe yfir skaptið fremst er vinsælt í 4x4...
svo er líka hægt að græja þetta svona:
Kristján Stefánsson:
Sælir, ég þakka ráðleggingarnar.
Ég fór og lét hávaðamæla bílinn eins og hann var, 94 db í lausagangi var niðurstaðan skv skoðunarmanni. Svo ég kolféll auðvitað á þeirri mælingu, hámark er 98 db + 2 db í skekkjumörk.
Ég leysti málið með að fá kúta í bílabúð benna eftir ráðleggingu frá meðlim hér á spjallinu, kútarnir heita Flowtech Raptor og bætti þeim bara við núverandi kerfi. Það virkaði svona líka vel og fór ég í skoðun í gær og mældist hávaðinn 80 db á þó nokkurri gjöf..
Það er ekki inní myndinni að setja h eða x pípu eða í raun breyta pústinu á neinn hátt sökum plássleysis sem er meðal annars útaf því að pústið er innfyrir grind eins og er..
Þannig að í raun er lítið gaman að þessu í augnablikinu, og sýnist mér á öllu að ég verði að setja snúningsmælir í bílinn einfaldlega til þess að sjá hvort hann sé í gangi eða ekki :lol:
Ég þakka enn og aftur kærlega fyrir mig :)
Navigation
[0] Message Index
[*] Previous page
Go to full version