ford hafa gert gríðagóða hluti með nýja mustanginn, það ber reyndar á miklum mun á meintu handling eftir því hvort maður skoðar amerísk eða evrópsk blöð,
Camaroinn í SS formi er dáldið mýkri en hann ætti að vera, hann er full þungur og alltof soft upp settur frá verksmiðju, mustanginn er að skora stig á að virka léttur og sprækur hliðina á camaronum, og tala nú ekki um hlunk hlunkanna challenger, sem er yfir 2tonn, og því er mustanginn að skora mjög hátt í því sem var það eina sem þessar amerísku dósir gátu í seinni tíð sem var fun factor.
hvernig ZL1 camaroinn á eftir að koma út verður bara að koma í ljós, en það eru hinsvegar staðreyndir að hann er algjörlega byggður á bíl sem lofaður um allar trissur fyrir frábært handling (holden monaro/vrx) og því er alveg vitað mál óháð því hvaða tegund menn kjósa að hann hefur alla möguleika á að geta dansað all hressilega, enda er hjólabúnaður og fjöðrunarkerfið algjörlega úr holdeninum, og menn þurfa ekki að horfa á marga top gear/5th gear til að sjá hvernig sá bíll hegðar sér, í raunini er ekkert nema klúður hvað GM virðast hafa klúðrað þessu góða fjöðrunarkerfi með því að fokka í því.
camaroinn er hinsvegar á sjálfstæðri afturfjöðrun, og það er bara staðreynd að bíll á sjálfstæðri afturfjöðrun hefur meiri möguleika á að höndla heldur en bíll á hásingu, menn þurfa að vera ansi krepptir í grímuni af tegundapólitík til að neita því, það er hinsvegar ekkert nema aðdáunarvert að sjá hvað ford eru að gera góða hluti með bíl sem þjáist af þessa fötlun fjöðrunarlega séð. en eins og ég kom áður inn á þá virðast evrópsku blöðin ekki vera jafn hrifin af þessu. en camaroinn er ekkert að koma auðveldlega frá þeim mörgum heldur,
annars er nú ekki hægt að horfa bara á tölur og staðreyndir, motortrend tefldu saman á sínum tíma (97 minnir mig) 2 nýjum bílum og það að þeir væru á annaðborð bornir saman vakti furðu, en þarna var nýjasta útspil porsche 996-911 bíllinn, og andlitslyftur camaro með t56kassa og ls1 vél.
þegar það var farið að skrásetja mældan árangur þá vakti ekki minni furðu að Camaroinn virtist halda merkilega vel í porsche-inn, hann tók betri tíma á nánast öllum powertestum, fór skuggalega nálægt honum í G á skidpad, og held ég hálfri mílu hægar í gegnum keiluþrautina, sem er fáránlegur árangur hjá camaronum. en það er hinasvegar annað mál og motortrend komu inn á það sjálfir að þetta er bara það sem var hægt að gera. í real life höndlar porsche-inn eflaust 60% betur heldur en camaroinn og var í raunini ekki samanburðarhæfur á neinn hátt, enda exotic sportbíll á meðan camaroinn telst í besta falli illa smíðaður hlunkur með merkilega spræka vél