Þetta er græja sem ég náði í fyrir nokkrum misserum, byrjaði að gera upp en missti svo áhugan og vildi selja en er hættur við sölu og ætla mér að klára þetta bara, ekkert vit í öðru...
Planið:1984 Chevy S10 rwd götubíll.
Undir 3000lbs. (1360kg.) með ökumanni er takmarkið..
18" ET classic five felgur.
TH350 skipting.
Pontiac V8 mótor (cid. fjöldi ákvarðast seinna
)
Stutt 12 bolta passenger hásing með Strange öxlum.Sat á bílakirkjugarði fyrir norðan..

Svona leit þetta út að innan... 2.0L fjarkinn var búin að gefast upp


Kominn í hús þökk sé "Zaper" hérna á spjallinu (Ási... að mig minnir)

Þrír partabílar sem ég keypti saman... þeir borguðu sig svo upp með sölu á varahlutum sem ég hafði ekki sjálfur not fyrir.

Búið að rífa hann vel niður og verið að spúla drullu af eldvegg og grind...

Ljótt ryð í kringum aðra húddfestinguna..

Glerblásturinn afstaðin og verið að máta 18" ,,old school lúkk" felgur sem passa og verða notaðar...

Ryðbætt með factory panelum


Allt að vera klárt í málningu...

,,Coke White" litur og gloss black grind...

Skúffan komin úr málningu og búið að festa á grind..

Búið að ryðverja inn í föls og bita... verið að máta miðstöðina í.

Einangrun á eldvegginn klár... samsetning á stýrishúsinu loksins hafin!

Skúffan fín geymsla fyrir varahlutina


Mælaborðið komið saman.. sameinað úr tveim. Factory radio delete platan komin í!


meira seinna....