Ertu leið/ur á ys og þys og viltu slappa af fjarri öllu áreiti í alveg yndislega friðsælu umhverfi, þá er þetta málið. Einfaldleikinn er bestur.
Til sölu lítill og sætur sumarbústaður í Svínadal beint á móti Vatnaskógi , 45 mín frá Rkv.
20 m2 bjálkahús með u.þ.b. 65 m2 palli í kring. Bústaðurinn stendur á 0,55 hektara kjarrivöxnu leigulandi rétt fyrir ofan Eyrarvatn, 5-10 mínútna gangur að vatninu þar sem hægt er að veiða silung og einstaka lax. hægt er að bæta við húsi eða stækka þetta ef vill á lóðina. búið er að planta nokkrum trjám í kring aukalega. skemmtilegar gönguleiðir. Einnig má vera með bát á vatninu og getur bátur með utanborðsmótor fylgt með ef umsemst . Húsið er tex og panilklætt að innan.
Inni í bústaðnum er lítil elhúsinnrétting með gas eldvél og gasísskáp, 10 lítra gashitari er fyrir neysluvatn. Wc snyrting, og svo er svefnsófi sem breytist í sófa á daginn (stofu) eldhúskrókur. stúdíoíbúðarfyrirkomulag. það fylgir allt með td. grill útiborð og stólar o.þ.h. bara mæta og byrja að njóta.
Fárra mínútna akstur í sundlaug og fínan gólfvöll.
Rafmagn og hitaveita er á lóðarmörkum.
Allt svo einfalt og ódýrt í rekstri.
Verð aðeins, 3,9 mill.
Get tekið eitthvað uppí , td bíl, ferðavagn ef það hentar, Skoða öll tilboð. Ekki vera feiminn að bjóða, í versta falli er svarið nei
Upplýsingar gefur Halldór Sveinsson. S. 696-7503