Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar

Pontiac Firebird Formula

<< < (6/6)

TommiCamaro:

--- Quote from: KrúsiCamaro on September 11, 2011, 22:45:03 ---prófaði að láta hann renna í gang heitann og hann datt í gang en vildi ekkert snúast hraðar en 1500 þá fór hann bara að banka og sprengja eins og venjulega þegar hann er heitur. Ég lét lesa af tölvunni að og hann kom bara með kóða á kveikjuna einnig virtist hann vera að gefa meira bensín inná annað heddið heldur en hitt. núna áðan drap ég á honum heitum og reyndi að starta aftur en þá snerist hann bara og snerist en fór ekki í gang, prófaði þá að taka snúruna sem fer frá tölvunni í kveikjuna úr sambandi og starta þannig og þá fannst enginn munur á því hvort hún væri í sambandi eða ekki þangað til hann kólnaði  :roll:. getur verið að startarinn sé að gefa vitlausann straum á allt og fokka öllu upp svona?

--- End quote ---
háspennukefli eða kveikjan, eitthvað sem er ekki að gera rétt samt erfitt að gera við í gegnum netið , gætir tekið youtube á þetta þá kannski gerir maður sér einhverja grein fyrir þessu.

318:
já ég hef verið að spá í háspennukeflinu, annars átti að standa "alternatorinn að gefa vitlausann straum" ekki startarinn :mrgreen: þegar bíllinn er kaldur þá sýnir spennumælirinn í mælaborðinu að hann sé að hlaða rétt yfir 13V en þegar hann hitnar þá lækkar mælirinn rétt niðurfyrir 13V getur verið að alternatorinn sé eitthvað klikka þegar hann hitnar og sé að hlaða eitthvað vitlausri spennu eða straum inná allt og fokka öllu upp. síðan er ég búinn að liggja á erlendu spjallborðum og sé að "Ignition control module" veit ekki hvað þetta kallast á íslensku, er eitthvað sem hefur verið að gefa sig og þá á það til að lýsa sér þannig að virka fínt meðan hann er kaldur en klikka síðan þegar hann hitnar, þessi "ignition controle module" er víst festur á heddið rétt hjá háspennukeflinu þannig að hann ætti að hitna þegar mótorinn hitnar og kólan síðan aftur,
annars kíki ég á þessa þrjá hluti næstu helgi

Navigation

[0] Message Index

[*] Previous page

Go to full version