Author Topic: Jeep Grand Cherokee á góða verðinu SELDUR!  (Read 1423 times)

Offline GonZi

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 225
    • View Profile
Jeep Grand Cherokee á góða verðinu SELDUR!
« on: December 27, 2010, 12:13:57 »
Til sölu Jeep Grand Cherokee limited, árgerð 1999.

Vél og drifbúnaður: V8 4.7L bensín, Quadra Track ssk, 4x4 sídrif.

Ekinn: 167.xxx km

Litur: vínrauður

Búnaður: Leður, lúga, „aksturstölva“ (með áttavita, hitamæli, eyðslumæli og þess háttar) Rafmagn í framsætum (með minni fyrir bílstjóra x2 tengt lyklakippu), hiti í sætum, cd+kasetta (infinity gold hljóðkerfi) og öllum þessa helsta búnaði sem prýðir góðan bíl :)
Bíllinn er með endurskoðun síðan í maí á þessu ári og selst hann óskoðaður. Það sem þarf að laga fyrir skoðun eru nokkur atriði: Stýrisendar í millibilsstöng, öxulhosur (þær fylgja með bílnum), bremsudælur að framan (vill festast öðrum megin, þarf að skipta um stimpla gúmmí og hreinsa dælurnar), röng tenging dagljósabúnaðar að aftan, gat á hljóðkút, lekamengun við kassa(skilur ekki eftir polla á planinu eða neitt svoleiðis, meira svona smit) meira man ég ekki eftir.

Það þyrfti að massa bílinn, annars er lakkið ágætt og ekkert ryð.

Það sem er nýtt eða nýlegt í bílnum: Nýjir diskar og klossar að aftan, nýuppteknar dælur að aftan, nýlegir diskar og klossar að framan og svo er ekkert langt síðan það var skipt um allar legur í afturhásingu.

Einsog áður segir þá selst bíllinn einsog hann er, og fer hann á góðu staðgreiðsluverði!!

Verð: Segjum 500 þús eða besta tilboð selst hæstbjóðanda!!
Skipti: Já, á ódýrari bíl + milligjöf
Upplýsingar í skilaboðum eða í síma 865-1452, Gísli.

Gömul mynd:

« Last Edit: January 03, 2011, 14:13:32 by GonZi »
Gísli Jónatan Pálsson

Jeep Grand Cherokee limited