Kvartmílan > Alls konar röfl

KK að gera góða hluti.

<< < (2/3) > >>

429Cobra:
Sælir félagar. :)

Mig langaði bara að benda á að forráðamenn keppninnar á laugardaginn gerðu rétt með því að breyta Auto-X brautinni þar sem mikil hætta hefði skapast út af þeirri olíu sem að fór niður á hægri braut Kvartmílubrautarinnar.

Það sem gerðist þarna var óviðráðanlegt atvik og kallast á reglumáli FIA "force major" (held ég stafi þetta rétt).

Þegar olía eða annar sleipur vökvi "hellist niður" á keppnisbraut ber brautarstafsmönnum að hreinsa vökvann upp og ganga þannig frá brautinni að hún sé fullkomlega hæf til keppni aftur, og engin hætta skapist lengur af þeim vökva sem helltist niður.

Í svona tilvikum er aldrei spurt um tíma, heldu aðeins það að brautin sé orðin jafn góð og áður og hættulaus fyrir keppendur og áhorfendur.

Starfsmenn KK gerðu allt rétt hvað öryggi á braut varðar fyrir keppendur og áhorfendur.

Kv.
Hálfdán Sigurjónsson.
Nefndarmaður í öryggisnefnd ÍSÍ.

1965 Chevy II:

--- Quote from: Einar Birgisson on September 20, 2010, 10:40:26 ---Tekið af BMW kraftur  " Ég var þarna sem áhorfandi og ég var bara andskoti fúll að þurfa bíða í meira en klukkutíma í skítakulda eftir Auto-X keppninni sem ég mætti útaf. Borgaði síðan fyrir að koma þarna inn og horfa á útur klúnkaða ameríska bíla dreifa olíu og brenna gúmmi...
Keyra úr Mosfellsbæ út í Hafnafjörð, borga þúsund kall og standa svo í skítakulda, svo loksins þegar autox byrjaði þá gátu keppendur ekkert keyrt almennilega af því einhver ameríkani var búinn að drulla á brautina ! ...

Hef nú sjaldan eða aldrei heyrt annað eins væl !  " úr Mosó í Hafnarfjörð þúsundkall inn og klukkutíma bið" hrikalegt að leggja allt þetta á sig ...


--- End quote ---
Það sem meira er að það var enginn amerískur sem dreyfði olíu,það var heldur ekki kalt,allavega var ég ekki var við það,fyrir hádegi var maður á stuttermabolnum
 í pittinum svo dró jú fyrir sól þegar leið á en það var bara prýðilegt veður miðað við árstíma.
1000kr inn og Bæzi sjálfur stóð vaktina stíft og bauð upp á fríar grillaðar pylsur,gos og V-power orkudrykkir efhentir af léttklæddum SHELL skvísum :smt061

Svo skrifaði einhver "að þetta væri keyrt saman til að reyna að fá meira í kassann" ég spyr er eitthvað að því? Það var reynt að búa til skemmtilegan fjölbreyttann viðburð,
ef ekki hefði farið olía niður hefði það gengið ágætlega en ég tel þó að framvegis ættum við að skipta þessu upp í tvo viðburði.

Porsche-Ísland:
Keppendur voru ekki að kvarta yfir veðri eða öðrum náttúru hamförum. Né hvað tegund af olíu þetta var eða úr hverju þetta kom.

Heldur var það að að útaf þessum olíuleka var ekki hægt að notast við báðar akgreinar og einungis hægt að aka rólega á annari akgreininni. Það var ekki það sem menn skráðu sig í.
Viðbrögð stjónenda voru eins og aldrei áður hefði lekið olía á brautina.  Enginn tók af skarið, enginn heilstæð laust. Ég benti strax á að það væri eina vitið að flauta þetta af. Þetta væri of hættulegt. Og hreinsunarstarf yrði bara of seinvirkt.
En mönnum fannst það ómögurlegt og ákváðu að raða keilum upp á nýtt og núna bara í einni línu. Sem gerði það að verkum að menn voru í fyrsta gír megnið af brautinni. Ekkert spennandi við það.
En svo voru menn látnir snúa við yfir á hina brautina og aka til baka eftir olíunni og bremsa þar. Það var einmitt það sem menn voru hræddir við. Enda runnu menn útaf.

Það að ætla kannski að halda aðra keppni og þá fái menn að keppa án þess að borga er kannski svar sem kvartmílumenn hafa sætt sig við. En þegar þetta er fyrsta keppni í eitthverju sem kannski aldrei verður haldið aftur, þá er þetta kannski ekki gott svar.

Það var ekkert að því að ætla að halda þetta bæði í einu. Hefði bara ekki átt að leyfa mönnum að vera skráða í bæði í einu. Hugmyndin var góð. En þessi óvænti olíuleki fór bara illa með okkur.

fords:
tók sjálfur þátt og fannst þetta bara fínt miðað við að það er verið að halda þetta í fyrsta skipti jújú það voru nokkur atriði sem máttu fara betur ekki t.d ekki halda 1/8 míluna á sama tíma og ekki láta fólk mæta klukkan 11 og hafa keppnina klukkan 4 en er einhverstaðar hægt að fá tímana úr auto-x inu og ég þakka bara fyrir góðan dag og vona að þetta verði haldið aftur.

Ingó:

--- Quote from: fords on September 20, 2010, 19:25:08 ---tók sjálfur þátt og fannst þetta bara fínt miðað við að það er verið að halda þetta í fyrsta skipti jújú það voru nokkur atriði sem máttu fara betur ekki t.d ekki halda 1/8 míluna á sama tíma og ekki láta fólk mæta klukkan 11 og hafa keppnina klukkan 4 en er einhverstaðar hægt að fá tímana úr auto-x inu og ég þakka bara fyrir góðan dag og vona að þetta verði haldið aftur.

--- End quote ---


 :smt023

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

[*] Previous page

Go to full version