Árni Johnsen gekk eftir ströndinni og allt í einu fann hann skrýtna flösku. Hann var forvitinn og og tók því tappann úr flöskunni. Og púfffff, andi kom uppúr henni og sagðist gefa honum eina ósk sem hann gæti fengið uppfyllta. Árni sagði að sig vantaði eiginlega ekki neitt.
,,Jú, það hlýtur að vera eitthvað sem ég get gert fyrir þig ” sagði andinn. ,,Ja kannski, mig hefur alltaf langað svo mikið í Bassabox ” Andinn reyndi að leiða Árna fyrir sjónir hvílík vandræði hlytust af því að eiga Bassabox , hvort það væri ekki eitthvað annað sem honum dytti í hug að biðja um. ,,Jú, kannski, mig hefur alltaf langað svo mikið til að syngja vel.”
,,Bíddu, bíddu” sagði andinn ,,varstu að tala um 4000W Bassabox ……..?”