Kvartmílan > Alls konar röfl
Bón meguiars / mothers
mustang02:
Búinn að leita mér að góðu bóni ansi lengi. Á endanum stóð valið á milli Meguiars og Mothers. Ég endaði með að kaupa Meguiars á bílasýningunni á Akureyri.
Fór að bóna um daginn og viti menn allur vökvinn í bóninum er búinn að skilja sig frá þvi.
Samkvæmt umboðsaðila er þetta þekkt vandamál og ég á að koma með brúsann til þeirra.
Ég bý út á landi og nenni varla að gera mér ferð með brúsann til að fá annan sem trúlega er ónýtur líka.
Hvað segja menn hver er reynslan af bóni? Á ég að henda helv meguiars ruslinu í ruslið eða gera mér ferð eftir nýjum eða á ég að láta mothers senda mér í póstkröfu?
1965 Chevy II:
Sæll,engin spurning að versla Mothers hjá Bæring 8-) :
http://mothers.is/forsida/
KiddiÓlafs:
Versla hjá Bæza 8-)
Ramcharger:
Ruslið í ruslið :mrgreen:
Kowalski:
Hvaða Meguiars bón ertu að nota?
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version