Skráning er nú hafin í fyrstu umferð Íslandsmótsins í sandspyrnu en keppnin fer fram á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar sunnudaginn 1. ágúst. Skráning fer fram í tölvupósti á netfanginu
ba@ba.is og það sem koma þarf fram við skráningu er:
Nafn ökumanns og kennitala, gerð ökutækis og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb. Skráningu lýkur mánudaginn 26. júlí kl. 23:59.-
Keppnisgjald er krónur 5. þúsund og skal greiðast inn á reikning 565-26-580 kt. 660280-0149. Upplýsingar um reglur Íslandsmótsins í sandspyrnu má finna hér
http://ba.is/static/files/Reglur/sandspyrna2010.pdfF.h. Spyrnudeildar BA
Garðar Garðarsson
gg@ba.is