hæ.
Þessi skemmtun sem hann er að tala um er sennilega þessi misskilningur sem kom upp eftir að Grétar Franks. átti við þetta lekavandamál að stríða.(þ.e. bíllinn hans lak ekki Grétar)
Það er hægt að vísa mönnum frá úr keppni fyrir olíuleka ÁÐUR en lagt er af stað en ekki eftir að ljósið fer niður eða eftir að ferð hefst.
Annars væru rauð ljós með 20metra millibili út alla braut til að láta þig vita að þú værir dæmdur út.
Stígur og Grétar voru búnir að fara tvær ferðir og Grétar vann þær báðar, þannig að Stígur var úr. En vegna þess að Grétar er með svo sjálfstæða stimpla sem vilja ekki búa í blokk, gat hann ekki haldið áfram. (varamótorinn var sennilega heima á eldhúsborði, hjá samlokunum)
En þegar þarna var komið var Grétar búinn að vinna sig uppí úrslit. sem hann mætti ekki í (þetta með vélina og samlokurnar) Og þar af leiðandi sigruðu Arnarsonfeðgarnir. (til hamingju með það)
Leiðindin fólust í því að fyrst Grétar var ekki fær um að mæta í úrslit þá tóku einhverjir það í sig að Stígur ætti að fara í úrslitin. sem var misskilningur.
Þannig að þetta voru engin leiðindi, heldur misskilningur. sem var sem betur fer leiðréttur.
Og allir kátir vegna þess að ekki kom upp leiðindamál....
Kv. Valur. langkátastur....
PS. vona að þetta sé ekki leindó...