Author Topic: Mercedes Benz 220SEb Coupé 1965 (W-111) SELDUR  (Read 2776 times)

Offline Benz

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 24
    • View Profile
    • Mercedes-Benz klúbbur Íslands
Mercedes Benz 220SEb Coupé 1965 (W-111) SELDUR
« on: May 18, 2010, 12:01:19 »
Hér er formlegur auglýsingaþráður fyrir þetta "draumaproject" mitt.

Ath. að það eru aðeins til 3 svona bílar á Íslandi (þ.e. W111 Coupé) og þar af er
1 í uppgerð hjá Herr Dr. Rúnari (http://www.stjarna.is/1963),
1 líklega ónýtur (sá eini beinskipti) og hefur hann staðið úti sl. 6-7 ár á Grensásveginum :evil:
og svo þessi sem auglýstur er hér.

Upplýsingar um bílinn
Gerð: Mercedes Benz 220SEb/C / W111 /3  -  3ja dyra "Coupé"
- þessi gerð af Mercedes Benz hefur viðurnefnið Heckflosse á þýsku og Fintail á ensku
Árgerð: 1965  (síðasta framleiðsluár 220 útfærslunnar)
Fastanúmer: VJ-023
Ekinn: ? - km. mælir sýnir bara 5 tölustafi og því ekki marktækur þar sem fyrri eigandi vissi ekki nákvæmar uppl. um aksturinn
Vélarstærð: 2195 ccm línusexa, 88 kW / 120 PS hestöfl
Gírskipting: Sjálfskipting
Eldsneytistegund: Benzín
Litur: "Taxabeige" ("kremaður" og augljóslega "sölusprautaður") - original litur var hvítur (DB050)
Drif: Afturdrif
Dekk / felgur: Sumardekk í ágætu ásigkomulagi (skv. beztu vitund), MB stálfelgur og koppar
Útbúnaður: Original Becker radio (veit ekki hvort það virkar), Webasto topplúga

Ástandslýsing:
Bíllinn þarfnast uppgerðar, var vel ökuhæfur (þ.e. sjálfskipting og bremsur virkuðu ágætlega) síðast þegar hann var ekinn en kaldræsibúnaður vélar er í ólagi.
Þá vantar rafgeymi í bíllinn þar sem hann eyðilagðist vegna "of lítillar notkunar"....

Aðrar upplýsingar:
Þessi bíll var fluttur til landsins frá USA í ársbyrjun 2006 en er þó Evrópumódel.
Ekki veit ég meira en það sem fyrri eignadi tjáði mér en hann sagði að bíllinn hefði alltaf verð í Kalíforníu og ber innréttingin merki þess að hann hafi staðið úti í sólinni  :roll:

Bíllinn hefur aldrei farið í gegnum skoðun hér á landi, bara forskráður og ber því fastanúmerið VJ-023.

Það þarf að gera heilann helling við þennan bíl til þess að gera hann eins og nýjann.
Líklega þarf þó ekki mikið til til þess að gera hann skoðunarhæfann þar sem vél og kram er þó að mestu leyti í lagi.  Bíllinn var, eins og áður segir, ökufær þegar ég fékk hann þó hann hafi átt í vandræðum með að fara í gang (hefur ekki verið ræstur frá árinu 2007). Kunnáttumenn (ég telst sem sagt ekki þar á meðal..) ættu auðveldlega að geta komið honum í gang aftur.  Í bílnum er þó splunkunýr kaldræsiventill  :wink: ásamt því að Ræsir "snéri vélinni" fyrir mig og lagaði eitthvað til í rafkerfinu (reikningur upp á 80.000 kr.  :shock:   :roll: ).
Þá er svissinn laus en ég varð að láta útbúa lykil í hann þar sem engir lyklar komu með bílnum.
Innréttingin er illa farinn og þarf að gera hana alla upp (setja nýtt leður á sæti, skipta um teppi, pússa við o.fl.) sem ég vissi af áður en ég keypti hann. Allur viður tel ég þó vera uppgerðarhæfur (skv. bestu vitund).  Einnig er möguleiki að það þurfi að skipta alfarið um sæti ef þau reynast ekki uppgerðarhæf.

Ég hef lítið getað gert við bílinn vegna plássleysis, verið upptekin við fjölgun mannkyns ásamt því að kreppan hefur ekki auðveldað aðföng.

Það sem ég hef keypt fyrir bílinn er English User Manual, sem ég læt fylgja með, og "Kaltstartventil" (kaldræsiventill),  ásamt því að ég get útvegað geisladisk með upplýsingum um bílinn (teikningar o.s.frv.).

Verð:
Tilboð óskast
Skipti möguleg en ég hef ekki áhuga á því að skipta þessum bíl upp í eitthvað annað
Ekkert áhvílandi, vörugjöld og tollar voru greiddir við komu til landsins.

Hér má sjá sambærilegan bíl til sölu á eBay.com en ég tel þó að minn bíll sé ekki eins ryðgaður og þessi - en þó með þeim fyrirvara að maður veit aldrei hvað leynist undir lakkinu þegar búið er að sandblása  :roll:
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&item=270581818172#ht_809wt_1165
Hér má svo sjá annan til sölu á eBay.de, ryð er augljóslega komið í bretti skv. myndum en ekki eins góð sölulýsing og í USA:
http://cgi.ebay.de/Oldtimer-Mercedes-220-Coupe-/200473466490
Ég hef íhugað að selja bílinn úr landi ef ekki fæst ásættanlegt verð fyrir bílinn og myndi þá líklega auglýsa hann á eBay.com og eBay.de.

Ef ásættanlegt verð fæst fyrir bílinn hér á landi þá verður hann eingöngu seldur til kunnáttumanna sem hafa metnað, aðstöðu, getu og fjármagn til þess að gera upp bílinn.  Ég hef engan áhuga á því að selja hann til aðila sem myndi bara láta hann standa úti og grotna :!:

Ef ekki fæst ásættanlegt verð fyrir bílinn þá mun ég frekar geyma hann þá bara áfram og vonandi fá þá bara tækifæri til þess að gera hann upp í framtíðinni  :wink:

Tengiliðaupplýsingar seljanda:
Benedikt Hans Rúnarsson
Sími: 858 6313
Netfang: bhr@simnet. is

Myndir:
Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru vorið 2006 þegar ég tók bílinn út "til þess að hreyfa hann aðeins".  Ath. að það brúna sem er á malbikinu undir bílnum er mold en ekki olía né ryðdrulla af bílnum  :lol:





Og nokkrar nýjar myndir frá því um sl. helgi:

Gripurinn tekur mikið pláss í þessu "frímerki af bílskúr" sem ég á, og er því hver centimeter notaður

Þröngt en samt í lagi ef vel er að farið  :wink:

Skottið er risastórt  8)





Já, innréttingin er ekki falleg og þarfnast algjörar yfirhalningar.

Helv... fíflin sem fluttu bílinn skemmdu hann  :evil:


Hér er að finna síðu undir "Bílar félagsmanna" á spjallþræði Mercedes-Benz klúbbs Íslands sem tileinkuð er þessum bíl:
http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=15&t=6709
og á Cardomain.com með fleiri myndum:
http://www.cardomain.com/ride/2300298

Nánari upplýsingar um þessa gerð af Mercedes-Benz er m.a. að finna á:
http://et.mercedes-benz-clubs.com/mediawiki/index.php/Kategorie:W110/W111/W112/en#W_111_.2F_W_112_Coupes   (nákvæmar tæknilýsingar frá Mercedes-Benz)
http://www.w111.net/ og
http://www.heckflosse.nl/

Þá má alveg geta þess að með þessari gerð bíla frá Mercedes-Benz (W111) var krumpusvæði kynnt fyrst til sögunnar, nokkuð sem þykir sjálfsagt í dag (W111 kom á markaðinn 1959) 8) 

Svona átti hann að líta út uppgerður af mér en þó með Coqnac (brúnu) leðri (DB code 1505):
« Last Edit: May 28, 2010, 23:29:40 by Benz »
______________________________________
Benedikt H. Rúnarsson

Offline Benz

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 24
    • View Profile
    • Mercedes-Benz klúbbur Íslands
Re: Mercedes Benz 220SEb Coupé 1965 (W-111) til sölu
« Reply #1 on: May 20, 2010, 00:06:05 »
Að gefnu tilefni þá skal það tekið fram að bíllinn er ekki í boði fyrir "slikk" enda myndi ég þá ekki selja hann.
Ég er heldur ekki að selja hann af því að mig vantar pening heldur aðallega vegna kunnáttuleysis. Það var ekki sérstaklega gáfulegt að byrja sína fyrstu bílauppgerð á þessum bíl  :roll:  :lol:
Aðstaðan er auðvitað einnig stórvandamál upp á uppgerðina sjálfa en ég get alveg geymt hann áfram í bílskúrnum mínum ef ásættanlegt verð fæst ekki fyrir gripinn.  Ég mun því ekki selja hann undir kostnaðarverði enda augljóst mál að ég get fengið uppsett verð ef ég sel hann úr landi.

Ásett verð er um 5000US$ (4000€)  Það er viðmiðið sem ég hef sett mér og hef ég þegar fengið tilboð upp á þessa upphæð m.v. uppítöku á öðrum bíl.  Það þýðir því lítið að reyna að bjóða mér eitthvað minna. 
En eins og segir í sölulýsingu þá má bjóða mér eitthvað upp í en þá verður viðkomandi hlutur að vera auðseljanlegur  :wink:
Þá hef ég ekki áhuga á því að setja þennan bíl upp í annan þar sem ég á þegar alveg nóg af bílum   8)
______________________________________
Benedikt H. Rúnarsson

Offline Benz

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 24
    • View Profile
    • Mercedes-Benz klúbbur Íslands
Re: Mercedes Benz 220SEb Coupé 1965 (W-111) til sölu
« Reply #2 on: May 23, 2010, 09:13:37 »
Kominn með nokkur ágæt tilboð sem ég er að skoða núna um helgina.
Það er því bara miklar líkur á því að þessi gripur verði áfram hérna á klakanum  :D

« Last Edit: May 23, 2010, 09:23:58 by Benz »
______________________________________
Benedikt H. Rúnarsson

Offline Benz

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 24
    • View Profile
    • Mercedes-Benz klúbbur Íslands
Re: Mercedes Benz 220SEb Coupé 1965 (W-111) til sölu
« Reply #3 on: May 27, 2010, 20:53:37 »
TTT  8-)
______________________________________
Benedikt H. Rúnarsson

Offline Benz

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 24
    • View Profile
    • Mercedes-Benz klúbbur Íslands
Re: Mercedes Benz 220SEb Coupé 1965 (W-111) SELDUR
« Reply #4 on: May 28, 2010, 23:30:15 »
SELDUR  8-)
______________________________________
Benedikt H. Rúnarsson