Sælir !
Er í smá veseni með 351w vél sem er einhvernstaðar á bilinu 1974 - 1980. Þessi vél er ofaní bronco 1976. Það er 4 gíra beinskiptur kassi í honum. Bíllinn hefur alltaf rokið í gang og gengið mjög eðlilega, það er 2 hólfa blöndungur á vélinni og duraspark II kveikjukerfi. Bíllinn er hreyfður 2 í viku.
Vandamálið er það að ég var að keyra einn daginn og eftir 5 min akstur byrjaði vélin að koka og svo drapst bara á henni. Ég reyndi og reyndi að starta en ekkert gerðist.
Ég byrjaði á því að athuga neistann, mældi viðnámið á innra og ytra vafi og það var engin skekkja á þeim tölum miðað við uppgefnar tölur frá motorcraft.
Athugaði þræði, þeir voru allir í lagi. Svo athugaði ég neistann út úr kertinu og hann var góður. Ég ákvað að prufa að starta aftur og skyndilega fór bíllinn í gang...
Ég keyrði þá smá um á honum þangað til að sama vandamál kom upp aftur, bíllinn kokaði og drap á sér. Gekk ekkert að starta honum, náði svo að starta honum og keyra á ganginum en við minnstu inngjöf drap hann á sér.Þá grunaði mig blöndunginn, svo ég tók hann af og opnaði hann og blés í gegnum öll göt með lofti og þreif hann með WD40. Setti hann svo aftur saman, en pakkningin á milliheddinu þar sem blöndungurinn situr á var smá rifin, svo ég setti Indian head gasket á milli. En ekkert breyttist.
Þá tók ég eftir því að það var nánast ekkert bensín í bensínsíunni. þá aftengdi ég hana og ekkert bensín kom út. Þá aftengdi ég slönguna sem kemur frá tanki að dælu og blés gegnum hana og hún var ekki stífluð. Þá tók ég dæluna af og hún var alveg hand ónýt gormur sem hékk útúr henni .
Ég skipti um hana og bensín sían fylltist á ný. Og bíllinn gékk fínt, gat gefið honum hressilega og allt með feldu. Svo ég ákvað að taka smá hring og þegar að ég var kominn í 4 gír með fulla gjöf byrjaði vélin að koka en drap ekki á sér, ég skipti í hlutlausan og allt í lagi, gat gefið honum fulla gjöf og hljómaði fínt.
Hvað getur Þetta verið..... Afhverju kokar vélin svona undir álagi.
Kv: Oddur
8938643