Ætla að stelast inn í þennan þráð þar sem hann er um bensín þrýsting ef ég má.
Ég er að lenda í því hjá mér að bensín þrýstingur er of lítill er ekki nema 23 psi þegar ég svissa á bílinn og breytist ekkert þegar ég starta. Mér er sagt að þegar svissað er á bílinn eigi þrýstingurinn að vera um 38 psi. Ég er með öfluga bensíndælu. Var að spá hvort hún sé að fá nógu mikið rafmagn eða bara biluð. Allar upplýsingar vel þegnar.
Líklega of lág spenna að dælunni.
Annar möguleiki er að bensín regulatorinn sé bilaður eða eitthvað vitlaust tengt.
Ég er búinn að fara yfir allt rafmagn, tengingar og prufa að beinteingja bensíndælu.
Þrýstingur fer aldrei ofar en 24 psi og dettur niður í 8 psi þegar ég sný lyklinum til baka.
Prufaði að hafa opið fyrir bakflæðið en það kemur ekkert bensín til baka.
Bensíndælan er uppgefin fyrir allt að 500 hp.
Ég er ekki viss hvernig ég sé hvort regulatorinn sé bilaður en hann var allavega hreinn og snyrtilegur.
Ég er að spá hvort það gæti verið að bensíndælan sé kannski ekki gerð fyrir meiri þrýsting
Öll ráð vel þeginn.