Kvartmílan > Aðstoð

Bensínþrýstingur engine off / engine on

<< < (2/3) > >>

baldur:
Jú en spurningin er hvort að dælan í tanknum er sjálfreglandi í 18psi eða hvort þú þarft að nota return regulator sem skilar öllu umfram bensíni til baka í tankinn.

einarak:

--- Quote from: baldur on March 11, 2010, 16:06:29 ---Já það er eðlilegt. Bensínþrýstingurinn á að fylgja þrýstingi í soggrein. Ef þú tekur vakúmslönguna af regulatornum ætti þrýstingurinn að fara í 45psi þegar vélin er í gangi.

--- End quote ---

Takk, þetta passaði, ef vacumið er tekið af þá fór þrýstungur upp í 45 aftur

Jón Þór Bjarnason:

--- Quote from: Jón Þór Bjarnason on March 13, 2010, 11:20:01 ---Ætla að stelast inn í þennan þráð þar sem hann er um bensín þrýsting ef ég má.

Ég er að lenda í því hjá mér að bensín þrýstingur er of lítill er ekki nema 23 psi þegar ég svissa á bílinn og breytist ekkert þegar ég starta. Mér er sagt að þegar svissað er á bílinn eigi þrýstingurinn að vera um 38 psi. Ég er með öfluga bensíndælu. Var að spá hvort hún sé að fá nógu mikið rafmagn eða bara biluð. Allar upplýsingar vel þegnar.

--- End quote ---

--- Quote from: baldur on March 13, 2010, 12:11:51 ---Líklega of lág spenna að dælunni.
Annar möguleiki er að bensín regulatorinn sé bilaður eða eitthvað vitlaust tengt.

--- End quote ---

Ég er búinn að fara yfir allt rafmagn, tengingar og prufa að beinteingja bensíndælu.
Þrýstingur fer aldrei ofar en 24 psi og dettur niður í 8 psi þegar ég sný lyklinum til baka.
Prufaði að hafa opið fyrir bakflæðið en það kemur ekkert bensín til baka.
Bensíndælan er uppgefin fyrir allt að 500 hp.
Ég er ekki viss hvernig ég sé hvort regulatorinn sé bilaður en hann var allavega hreinn og snyrtilegur.
Ég er að spá hvort það gæti verið að bensíndælan sé kannski ekki gerð fyrir meiri þrýsting  :?:
Öll ráð vel þeginn.  :smt017

baldur:
Ertu viss um að mælirinn sé réttur?

Jón Þór Bjarnason:
Já mælirinn er réttur. Fékk annan mæli lánadann til ad sannreyna mælinguna. Regulatorinn hleypir til baka vid 46 psi.

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

[*] Previous page

Go to full version