Er með eðal Grand til sölu í góðu standi!
Ég er aðeins 4 eigandi á bílnum og var hann alltaf í eigu sömu fjölskyldunnar á undan mér, var á Akureyri og Selfossi áður en ég eignaðist hann og hefur því ekki kynnst saltinu á vegum Reykjavíkur.
Helstu upplýsingar eru:
- Jeep Grand Cherokee Laredo
- Fyrst skráður: 21.04.1995
- Ekinn aðeins 184.***km
- 4.0 ltr vél, 190hö
- Sjálfskiptur
- Selec-Trac millikassi (NP242)
- Reyklaus
- Grænn að lit
- Skoðun: Frestur til 28.02.2010
Helstu auka- og fylgihlutir
- Geislaspilari, ABS, Cruise Control, samlæsingar, AC, rafmagn í rúðum.
Listi yfir hluti sem er búið að gera:
- Ný smurður
- Ný olía á sjálfskiptingu og ný sía
- Ný bensín sía
- Ný loftsía
- Nýr olíuþrýsti skynjari
- Nýr hitaskynjari
- Ný pústgrein ásamt pakkningu
- Ný vatnsdæla, nýr kælivökvi
- Ný viftureim
- Spíssar hreinsaðir
- Loftgrein tekin og hreinsuð
Bílinn lítur mjög vel út bæði að innan sem utan miða við 15 ára gamlan bíl enda lítið ekinn (um 12.300km á ári). Hann er með snilldar millikassa sem hefur þann eiginleika að geta verið Full Time og Part Time í fjórhjóladrifinu.
Ég fór með hann í skoðun í fyrra dag og fékk eina athugasemd og hún var: "Óþétt púst" og þar afleiðandi fékk ég grænann miða. Hann getur selst "as is" en einnig getur hann selst með fulla skoðun (11 miða).
Það er lítið sem ekkert ryð í honum og því má þakka að hann hefur ekki verið í saltinu í Reykjavík.
Bíllinn er núna á góðum sumar dekkjum.Verðhugmynd er aðeins 390.000kr
Skoða skipti á Toyotu, Hondu, Subaru, Volvo, Saab eða Ford. Er að leita að 4 dyra fjölskyldu bíl á svipuðu verði, mættu þó vera dýrari
Hef mikinn áhuga á Hondu Aerodeck, Subaru Legacy stationEndilega sendið mér PM eða e-mail á
thormundurs@gmail.com