'eg vona að sem flestir láti sjá sig.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar og íþrótta- og tómstundanefnd, býður þér að vera við afhendingu viðurkenninga til hafnfirskra íþróttamanna.
Viðurkenningarhátíðin fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu þriðjudaginn 29. desember 2009, kl. 18:00.
Vinsamlegast boðið meðstjórnendur, þjálfara og þá sem viðurkenningar eiga að fá fyrir Íslandsmeistaratitil og Bikarmeistaratitil árið 2009 í þínu félagi eða þinni deild. Auk þess er nærveru þinnar vænst vegna móttöku styrkja.
Með jólakveðju
Virðingarfyllst
f.h. Íþrótta- og tómstundan. Hafnarfjarðar
Ingvar S. Jónsson
íþróttafulltrúi