mótorinn í jeppanum hjá mér er búinn að vera með smá gangtruflanir,
þær lýsa sér þannig að fljótlega eftir að bíllinn er settur í gang og tekið er af stað, kokar bíllinn og missir alveg allt afl, nema maður gefi alveg inn eða sleppi gjöfini, það er hægt að komast í kringum þetta með smá leik með bensíngjöfina, en þetta er engu síður "hvimleitt" þetta hættir svo eftir smá stund í akstri og kemur ekki aftur ,
mig grunar að þetta sé misfire e-h staðar,
ég las bílin, og út kom oxygen sensor og misefire #8, þegar betur var gáð voru þetta eldgömlu villuboð, og áttu ekki við lengur,
bíllinn sýnir enga villukóða,
ég las alla skynjara á mótor og þeir sýna allir rétt volt
ég gerði kill test á spýssum, 1 í einu og þeir voru allir í lagi,
gerði kill test með kerti og þau fá öll straum.
það er nýtt kveikjulok, nýjir þræðir, og ný kerti,
ég prufaði að lesa bílin meðan að ógangurinn var í honum, og tölvan varð ekki varir við bilunina, þannig að þetta er ekkii elektrónískt
þetta er dodge durango með 5.2l magnum,