Ég er nú enginn sérfræðingur um tjúningar og var að vona að einhver mér fróðari myndi stíga fram.
Mér skilst að L83 hafi verið með 9:1 í þjöppu, sem er nú ekki alveg afleitt. Fáir hafa nennt að notast við Cross Fire Injection (köllu Cease Fire Injection) og hafa notað blandara.
Kannski ekki hægt að gera mikið fyrir 100 þúsund, álhedd eru örugglega dýrari (og pottþétt ef þau koma að utan). Spurning með hedd með aðeins minna sprengirými til að hækka þjöppuna eitthvað (geri ráð fyrir að hún sé ekki mikil). Meira að segja Vortec heddin fara langt framúr verðmiðinu.
En miðað við 100 þús. þá er ekkert annað en að ná sér í ódýr hedd sem hækka þjöppuna eitthvað og eru ekki með of litlum ventlum (spurning með hedd af 305, voru sum þokkaleg), ekkert alltof stóran blandara (650-750) og dual plane ál millihedd (skemmtilegt á götunni). Já, og auðvitað þarf að velja knastás miðað við það sem þú ætlar að nota bílin og sem passar við heldar kombóið (lítið vit í að vera með ás sem vinnur á 4000-8000 rpm en er steingeldur þar fyrir neðan ef þetta er götubíll).
Svo er spurning hvort að það liggi TPI innspíting á lausu, þær vinna vel neðarlega á snúningsvæginu og rífa bílana þokkalega áfram (en ef þú ætlar að snúa mikið meira en 4800 þá þarftu að gera ráðstafanir).
En þetta endar ekki hér, þú þarft þá helst að vera með túrbínu í skiptingunni sem er miðuð við heildar kombóið (uppsetning á vél, þyngd bíls og hlutföll). Það hefur reynst mér vel að hafa samband við tæknimenn þeirra fyrirtækja í USA sem ég hef skipt við, leggja spilin á borðið (hvernig allt sem snýr að bíl og væntanlegri notkun hans er) og fá ráðleggingar þeirra.
Þannig að það er kannski ekkert einfallt svar við þessu, það leynast samt örugglega mjög fróðir menn hér sem hafa náð helling af hrossum útúr 350 fyrir lítið með notuðum pörtum og vonandi munu þeir ausa úr skálum visku sinnar