Author Topic: Stolið vinsaml. lesið!!!  (Read 1580 times)

Offline trukkurinn83

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 6
    • View Profile
Stolið vinsaml. lesið!!!
« on: September 04, 2009, 22:31:46 »
Brotist var inní gamlann BRONCO sem stendur inní skúr í hverfi 108 og þaðan var tekinn DVD spilari í bíl og hátalarar af gerðinni PIONEER AVIC D3 sem er tvöfaldur spilari með snertiskjá og innbyggðu GPS kerfi.

Einnig var gríðarlegt magn af varahlutum í þennan bíl (1981model stóri Bronco) allt saman nýtt keypt i ameríku eins og ný xenon framljós nýtt grill að framan með krómlistunum ný glær afturljós, nýjir trukkaspeglar,

nýtt GT GRANT sportstýri með breytisetti fyrir þennan bíl,

eitt sætisáklæði sem er svart með myndum af hauskúpum og gaddavír (hitt gleymdist í skottinu), stýrishulstur með myndum af sporðdrekum, ilmspjald með mynd af hauskúpu, beltis púðar með mynd af sporðdreka,

Vélarhlutir eins og nýjar flækjur nýtt ál millihedd ný króm ventlalok nýr lofthreinsari nýr 650cfm off road blöndungur allt saman Edelbrock, ný kveikja frá MSD sem og kveikibox,

Gírhnúður one of a kind sem er einskonar billiardkúla glær með mynd af álfadís innbyggðri i kúluna,

ég er örugglega að gleyma alveg helling af hlutum þar sem ég er búinn að vera sanka þessu að mér síðastliðinn 3ár til að gera bílinn upp þannig að þetta er ómetanlegt tjón fyrir mig og er ég brjálaður!!!!! ef einhver hefur einhverja minnstu hugmynd um hvar þetta er niðurkomið þá er ég í síma 6161721 (á kristilegum tíma þar sem ég á börn) og lögreglan í síma 112. eða email ralbertsson@hotmail.com