Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
Bíll Dagsins 20.ágúst 1967 Camaro
ABG:
--- Quote from: GunniCamaro on November 21, 2009, 13:41:28 ---Það er gaman að þessum pælingum hjá þér, ég sé að þú hneigist í átt að Pro Touring útlitinu/breytingunum sem er vinsælt núna, það er spurning hvort þú ætlar að fara í útlitið eða allan pakkann með fjöðrun og alles.
Ég er hissa á að þig langi í SS útlitið (sem er alveg skiljanlegt) þar sem þú ert að horfa til Pro Touring, SS er meira retro look en það er reyndar hægt að leika sér með SS röndina en ég færi frekar í Cowl-induction húddið (Z-28 húddið) sem er meira pro og algjör snillt.
Aftur á móti finnst mér algjört "MUST" að vera með RS grillið, sérstaklega ef þú ferð út í pro lookið, standard grillið finnst mér ekki fallegt og enn ljótara á Pro bílunum.
Það er hægt að kaupa RS kitt þar sem venjulegu brettunum er breytt fyrir RS grill og er hægt að fá allt saman í einum pakka en það er ekki ódýrt.
--- End quote ---
Já Gunnar,það er margt hægt að gera :) Mér finnst bara eins og flestir 1 og 2 kynslóðar cammar sem að eru gerðir upp í dag séu með cowl húddi,finnst það geggjað en ss húddið er meira gamaldags sem að ég fíla í bland við lækkun og stærri felgur.
Ég hef átt erfitt með að gera það upp við mig hvort húddið ég tek en þarf að panta það í desember svo að það kemur í ljós..þá
Það er mikil vinna og margt sem vantar til að koma honum á götuna í vetur svo að fjöðrun,hásing,vél oþh. bíður til betri tíma.Svo kemur vetur aftur og annar vetur... :lol:
Mér finnst standard grillið skemmtilega gamaldags og flott og stendur svolítið í huga mér sem ímynd 1st gen camaro frá því að maður var púki 8-) Efast um að ég skipti því út
Hér eru flottir 67 og 68
GunniCamaro:
Þar sem við erum ekki sammála sé ég fram á skemmtilegan vetur hjá okkur, það gleður gamla SS kallinn hvað þú ert hrifinn af SS húddinu, ég hitti nokkra Camaro kalla í dag við vorum að ræða Pro touring dæmið fram og til baka og þar voru ýmsar skoðanir sem komu fram enda ekki von, það eru svo margir mögleikar til eins og sést á myndunum sem eru hér.
ABG:
Haha já sem betur fer eru skiptar skoðanir og fullt af flottum hugmyndum.Annars værum við bara með einn ríkisbíl :mrgreen:
Er þinn camaro á leiðinni á götuna ?
Svenni Devil Racing:
--- Quote from: ABG on November 18, 2009, 20:00:20 ---Ég er lítið búinn að skoða það hverju ég kem undir hann,en ég ætla að lækka hann svo að þetta eru 7 eða 8" að framan og helst 9,5 eða 10" að aftan.Held að það gangi.
--- End quote ---
Held að lámarkið sé alveg 12 tommur að aftan 8-) ehehe en bara mín skoðun , þetta verður flott hjá þér :D
ABG:
Ég bara veit ekki ennþá hvað ég kem breiðu undir hann,set örugglega eins breitt og passar honum og takk :)
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version