Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
2010 Chevy Camaro SS, 2009 Dodge Challenger R/T and the 2010 Ford Mustang
1966 Charger:
Gunni greyið alveg búinn að missa legvatnið yfir nýja Kamarhróinu en hefur hvorki lesið greinina vel né rýnt í tölurnar.
Eitthvað fyrir grúppíurnar til að pæla í:
1. Þarna er semsagt verið að bera saman ársgamlan Challa við nýjan Kamar og Töng. Duh!
2. Challengerinn í testinu er með 5,7 lítra vélinni en ekki 6,1 lítra vélinni sem hægt er að fá hann með. Einmitt það!
3. Miðað við Cammann er testútgáfa Challengersins 51 hestafli kraftminni, með vél sem er 1/2 lítra minni og 118 kílóum þyngri. Það væri ekki bara kjánalegt heldur gegn öllum eðlisfræðilögmálum ef að Hróið hefði ekki haft betur í performance samanburði. Engin ástæða fyrir slaufumenn að fagna þessu, en massaþunglyndi vonandi forðað í hjörðinni.
4. Í meðaleinkunn fær Camminn bara einu stigi meira en Töngin, 3,7 vs 3,6. Væri ég Chevygrúppía mundi ég ekki halda upp á það með meiru en einum ódýrum bjór. Væri ég Fordfanatic mundi ég kaupa Six-pack (marga).
5. Á sömu vefsíðu og samanburðartest sem sumir geisla yfir, þar er test um Challann frá 2008 (http://jalopnik.com/398221/2008-dodge-challenger-srt8-part-one) þar sem skepnan sú er með 6,1 l Hemi enda leið höfundi testsins svipað og Gunna líður í dag.
6. Þegar Kamminn er farinn að keppa við þessa útgáfu af Challanum í Super Stock http://www.youtube.com/watch?v=AU-eRJqBOac. þá fer að verða hægt að gera alvörusamanburð. Spariði stóru orðin þangað til, stúlkur.
Ábendingar höfunda greinarinnar til væntanlegra Kamarhróeigenda eru skynsamlegar:
"Grow a mullet, switch to cheap domestic beer and embrace your inner hoon."
Góðar stunur
Ragnar
1965 Chevy II:
firebird400:
Svo er ekkert að marka svona myndir, manni finnst kannski allt annað fengi maður það að skoða þetta hlið við hlið með berum augum, já svo ég tali nú ekki um með berum konum, en það er allt annað mál :D
Svo er staðreyndin eflaust sú að þessar performance tölur eru svo slappar að standard evo eða álíka gæti rassað þetta allt. Tala nú ekki um ef það er beygja á leiðinni :lol:
Þetta á bara að vera cool, enda algjörar risaeðlur sem spóla alveg jafn mikið á 5,7 og 6,1
GunniCamaro:
Jahérna Það er aldeilis að Ragnari sveið í afturendann, þetta var nú bara smá föstudagsgrín.
Ég er nú ekki búinn að rýna svona svakalega í smáaletrið eins og Ragnar, en ég fór í síðustu viku í bókabúð og þar voru fjögur bílablöð með Camaro á forsíðunni og ég greip eitt þeirra, Road and Track eða Car and Drive, og fletti og þar var verið að testa þessa þrjá bíla saman.
Og eitthvað fyrir Ragnar til að pæla í :
1. mér finnst frekar ólíklegt að það sé verið að bera saman sitthvora árgerðina í testi á nýjum bílum.
2. og 3. Það er nú skrýtið að svona stærðfræðisnillingur eins og þú skulir ekki hafa fattað af hverju þeir prufuðu ekki 6.1 lítra vélina, en það er einföld ástæða fyrir því, SS Camminn (420hp.) kostar um 32000 $ en það er svipað og 5.7 lítra Challinn kostar því 6.1 er ekki í sama verðflokki og er því ekki samkeppnishæfur í verði við Cammann.
4. Í testinu sem þú last má vel vera að Camminn hafi skorað bara einu stigi yfir Mustanginn en það er margt sem er gefið fyrir einkunn og það sem Camminn fær helst hrós fyrir er sjálfstæða fjöðrunin a/f en mustanginn fær helsta mínusin fyrir heilu hásinguna.
5. Það er nú skondið að minnast á test frá 2008 því ég las text frá því í fyrra þar sem mönnum fannst fyrsta árgerðin af Challanum sem var aðeins boðin SRT8 með sjálfsk. og án læsts drif, það lítið spennandi að þeir ráðlögðu fólki að bíða eftir næstu árgerð sem yrði þá boðin með beinskiptingu og læstu drifi.
6. Ég var að tala um test á óbreyttum bílum út úr umboði, að draga fram einhverjan samanburð á super stock er eins og bera saman appelsínur og epli.
Og svo þarf ekki að spara stóru orðin, staðreyndirnar tala sínu máli, þannig að þið Fiat kallarnir ættuð að hætta að láta eins og dæmigerðir Ítalir og veifa höndunum og æsa ykkur.
Góða helgi Ragnar
P.s. ég lít gagrýnisaugum á Cammann eins og aðra bíla og ég sá einn á bílasýningu á Florida í haust og það eru nokkur atriði við Cammann sem ég kann ekki við.
Kristján Skjóldal:
þetta eru allt flottir bílar og það besta sem bílaframleiðendur hafa gert leingi =D>og sem betur fer fyrir alla USA elskendur nema AMC :lol:
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version