...nokkur verkefni verða kláruð seinnipartin í dag / kvöld ef einhverjir hafa áhuga.
Við þurfum að hækka upp járnbrunninn sem er á miðri braut fyrir framan ræsinn. Fara með hann upp um lágmark 5 cm þannig að hann verði í sömu hæð og malbikið. Einnig þarf að skera ofan af plattanum sem startsellan á hægri braut var á. ( Svarta plastið sem stendur upp úr honum).
Það er félagsfundur kl. 20.00 í kvöld og vafalaust einhverjir sem mæta þangað, ég verð sjálfsagt kominn rúmlega kl. 20.00. Ef einhverjir duglegir aðilar taka þetta að sér í kvöld er að öllum líkindum hægt að malbika brautina á morgun (fimmtudag).