Kvartmílan > Alls konar röfl

Hjálp v/hvít málning á dekk/drullusokka

(1/3) > >>

KristjánJóhann:
Er að leita mér að hvítri málningu til að mála stafi á gúmmídrullusokkana á bílnum hjá mér. Heyrði einhverstaðar að fornbílaklúbburinn lumaði á einhverju svona til að mála rendur á dekkin á gömlu köggunum. Hvar get ég nálgast svona...

Björgvin Ólafsson:
Hjá Fornbílaklúbbnum!

kv
Björgvin

Kristján Ingvars:
Eru menn virkilega að dunda sér við það að mála hvíta hringi á dekkin?  :smt043

Moli:

--- Quote from: Kristján Ingvars on March 23, 2009, 12:19:35 ---Eru menn virkilega að dunda sér við það að mála hvíta hringi á dekkin?  :smt043

--- End quote ---

Já til að halda original lúkkinu, það eru sumir sem vilja það.

Kristján Ingvars:
Það er nú ekki það sem ég átti við Maggi, hvítir hringir eru hið besta mál. En eru menn að mála þá á dekkin? Bæði hægt að kaupa svona dekk (reyndar frekar dýr) og svo er hins vegar hægt að kaupa svona staka hringi sem eru bara settir á felguna með dekkinu, þannig var ég með það og þannig er Arnar með þetta og það lookar bara mjög flott  8-)

Þá er líka alltaf hægt að skipta þeim út þegar þeir eru orðnir brúnir  :D

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

Go to full version