Tekið að spjallsíðu RR-AÍH -
http://roadrace.spjallbord.net/default.aspx?g=posts&t=114Góðan daginn áhugafólk um kappakstur á öllum ökutækjum sem ná allt að 300km hraða...(Á lokuðum Brautum)
Er að vinna að stórri viðskiptaáætlun með smíði á alvöru malbikaðri braut allt að 4000metra löng og lámark 12 metra breið með öllu tilheirandi og hefði áhuga á að kanna áhuga ykkar akstursíþróttafólks hvort áhugi sé virkilega fyrir þessari stærð af braut...
Hef vélar og tæki til að láta þetta gerast með stuttum fyrirvara..Tek það fram að ég var aðeis 45 daga að byggja 600 metra langa braut (Reisbrautin) árið 2000 með færri vélum en ég hef til umráða nú.
Landið undir brautina er til og teikningar en nú kemur að ykkur kæra akstursíþróttafólk er virkilega vilji til að láta DRAUM okkar allra verða að veruleika..
Nú vil ég sjá viðbrögð ykkar koma skýrt framm á þessum miðli, og ef virkilega er vilji til að ráðast í þetta verkefni vil ég sjá skýr svör, (NAFN og KENNITÖLU). Og fyrir aftan nafn ykkar sem áhuga hafa skal merkja (Bíll) fyri þá sem hyggjast aka bíl á brautini og (HJÓL) hjá þeim sem ætla að aka hjóli á brautini. (Bara til að hafa tölfræðina á hreinu)
Bara til að upplýsa ykkur akstursýþróttafólk að ef ég tek að mér verkefni þá fer ég í það til að klára það,,það getið þið séð með tilkomu Gokartbrautarinnar í Reykjanesbæ hja Reisbílum..
Mér er mikið í mun að koma þessari braut á kortið og til þess þarf ég ykkar stuðning.
Ekki dugir að fá einhverja tugi jákvæða pósta til að kvetja mig til að koma þessu verkefni af stað mig vantar alvöru stuðning..
Óska ég eftir svörum hér og eins að senda mér mail á póst minn (
reisbilar@simnet.is) gamla Gokartmeilinn..
Látið þetta berast út á meðal félaga og sjáum hvort brautin verði ökufær í sumar.....eða haust...
Ég þykist vita að allmargir hafa áhuga á að þessi braut verði að veruleikaog þurfa menn ekki að eiga bíl eða hjól til að skrá sig sem meðlimur. Allir geta verið meðlimir og sínt þessu stuðning. Bara merkja við ef um stuðning við verkefnið er að ræða (STUÐNINGUR).
Ef það hrúgast ekki inn svörun við þessum pósti á næstu dögum þá þurfum við sennilega að bíða nokkuð lengi eftir að braut muni fæðast... á Islandi..
Kveðja
Stefán Guðmundsson.
Reisbílar Ehf.
Gokart.
893-1992