Serious! Ertu ekki til í að skella inn mynd af Móanum þínum og hressa upp á þessa Ryð Rod umræðu?
Þú sagðir hérna einhverstaðar að hann væri á góðri leið að verða svona.
K.v.
Ingi Hrólfs
Ingi smá info handa þér þetta er ekki Mói þetta er og verður Oldsmobile Delta Custom 88 1971 og er alveg gullfallegur
He he, þú ert ágætur.
Hérna í denn voru Olsmobile oft kallaðir einfaldlega "Oldsmo" eða bara" Mói" og mér finnst bara gaman af því. Þeir voru ekki kallaðir Móar í einhverju vanvirðingarskyni heldur landans lenska að stytta öll orð eins og kostur var.
Hitt er annað mál að þinn var, þegar þegar hann rúllaði út úr verksmiðjunni gullfallegur Oldsmobile Delta Custom 88 árg 1971 en endar sennilega sem yndisfagur "mói" með þessu áframhaldi, um árgerð er ekki enn vitað.
Fyrst þú villt ekki láta hann, endilega komdu honum þá í betri geymslu, eins og þú reyndar segir að sé í bígerð, það eru ekki margir svona eftir held ég.
Gangi þér vel með þennan bíl, mér finnst þú eiga efnivið í einn af flottari köggum landsins.
K.v
Ingi Hrólfs.