jæja einsog ég var búin að segja þá stálu einhverjir misyndismenn framstuðaranum af lexus jeppa systur minnar eina nóttina. mér var svo bent á bíl sem stuðarinn hefði líklega farið undir. Og svo nokkrum dögum síðar fannst sá bíll úti vegkanti á leið til garðarbæjar með stuðaranum en tjónaður að öðru leyti. hvað gera góðborgarar þá, hringja í lögregluna, sem var voða hissa tók niður einhverja punkta en rauk svo í burtu áður en hún hafði lokið sér af á eftir einhverjum sem hafði sennilega ekið of hratt. við biðum og biðum kom þá annar lögreglubíll og hafðist það þá að hafa upp á eigandanum sem hafði víst tilkynnt hann stolinn en dróg svo í land með það og sagðist hafa keypt stuðarann á partasölu. lögreglan tók þá bílinn í sína vörslu þangað til hann sannaði það. svo höfum við hringt nánast daglega í rannsóknarlögregluna og hafa þeir víst hennt þessu máli á milli sín einsog heitri pönnuköku og eru nú víst þrír menn búnir að vinna að þessu, en ekkert gerist. Fyrr en í gær þá eru þrír ventlar skornir af dekkjunum fyrir utan vinnu mágs míns. lögreglan kom voða hissa og sagði að svona glæpamenn þreyttust nú yfirleitt. en greinilega höfðu þeir einhvern þrótt því að í nótt börðu þeir allan bílinn að utan og enduðu svo á að kveikja í bílnum.. Viðkomandi glæpamaður er nefnilega rosa reiður að við vildum fá stuðarann tilbaka sem hann stal..