Kvartmílan > Spyrnuspjall
Tillaga að breytingum á 7. grein laga Kvartmíluklúbbsins.
429Cobra:
Sælir félagar. :)
7. Grein laga Kvartmíluklúbbsins fjallar um breytingar á lögum og keppnisreglum klúbbsins.
Mér ásamt mörgum öðrum hefur fundist að það eigi að taka ákvörðun og kosningu um keppnisregur út af aðalfundi klúbbsins og hafa sér fund og kosningu um reglur, einnig að það eigi að frysta reglur í vissan tíma þannig að bíllinn sem að tók ár að smíða eftir núverandi reglum sé ekki orðinn úreltur og þurfi miklar breytingar loks þegar á að nota hann.
Þá hefur mér ásamt öðrum fundist lagagreinin orðin ruglingsleg sökum fjölda breytinga á síðustu árum.
Með þessu er leitast við að orða lagagreinina og koma henni í betra horf án þess að breyta henni mikið.
Vissulega legg ég til að reglunefndinnni verði breytt í "tækninefnd" sem að hefur mun víðtækara og ábyrgðarmeira hlutverk en reglunefndin hefur í dag.
Það lá í loftinu að það yrði að setja á stofn einhverja/einhvern, hóp/nefnd til að sjá um öryggisreglur og reglur um keppnishald og skoðun, þess vegna legg ég til að sett verði upp tækninefnd sem að sér um að gera það auk þess að taka við reglunefndarstörfum.
Það er alger óþarfi að hafa tvær nefndir sem eru að hræra í sama pottinum og síðan enda hlutirnir hugsanlega í misskilningi milli nefnda sem ekki reynist tími til að leiðrétta fyrir aðalfund.
Það að hafa almenna reglufund/i í Nóvember gerir það að verkum að nýlokið tímabil er ferskara hjá keppendum og þá ætti að vera auðveldara að finna hvað er að og laga það.
Síðan eru reglurnar tilbúnar ekki seinna en í janúar og þá er þeim dreift til lestrar á aðalfundi og þá þegar er búið að samþykkja þær þannig að ekki þarf að eyða tíma aðalfundar í umræður um reglur, en til þess að það sé hægt verður að breyta þessari lagagrein.
Það að frysta reglur um flokka í þrjú ár eftir að flokkur er "smíðaður" eða honum breytt, gerir það líka að verkum að menn vanda sig betur við "smíði" flokka.
Þetta gerir líka mönnum frekar kleyft að smíða sér keppnisbíla án þess að vera að flýta sér um og of og vera hræddir um að viðkomandi flokki hafi verið breytt og bíllinn sé orðinn ólöglegur í hann eða ekki samkeppnisfær þegar þeir mæta.
Þarna er líka tekið á því í fyrsta sinn svart á hvítu að öryggisreglum má breyta og þær uppfæra hvenær sem er á keppnistímabili (sambærilegt við önnur lönd).
Líka er verið að velta vissum verkefnum af stjórn klúbbsins og keppnisstjórn með því að tækninefndin sér um skoðun keppnistækja og á að leysa úr ágreiningsmálum sem að upp kunna að koma um reglur og skoðun auk, þess að búa til verklagsreglur um skoðun og þjálfa skoðunarfólk og starfsmenn við braut í samráði við keppnisstjórn.
Einnig á nefndin að svara þeim spurningum sem að upp kunna að koma hjá keppendum eða öðrum með tilliti til reglna.
ATH! hér er verið að ræða um "tækninefnd" Kvartmíluklúbbsins sem á síðan að eiga fulltrúa hjá verðandi reglu/öryggisnefnd ÍSÍ, en þær keppnisreglur sem að heyra undir nefndina eru fyrst og fremst reglur Kvartmíluklúbbsins.
Hér kemur greinin, fyrst eins og hún er í dag og síðan breytingatillagan.
7. gr. Breytingar á lögum félagsins og einnig breytingar á keppnisreglum má aðeins gera á aðalfundi félagsins. Til að breytingar á lögum eða reglum félagsins nái fram að ganga þarf, minnst, atkvæði 2/3 hluta mættra félagsmanna. Auglýsa skal tillögur að laga eða reglubeytingum í fundarboði til aðalfundar.
7. 1. Ef um ónóga fundarsókn er að ræða skal stjórnin hafa rétt til ákvörðunar á framhaldsaðalfundi viku síðar og telst sá fundur lögmætur óháð fundarsókn. Ónóg fundarsókn til aðalfundar telst vera 20 félagsmenn og færri.
Tillögum að reglubreytingum skal skila inn til nefndar sem fer yfir tillögur að breytingum eða kemur með tillögur sjálf til reglu eða flokkabreytinga.
Tillögur skulu berast nefndinni skriflega fyrir 5 Janúar hvers árs.
Þá skal nefndin vera búin að leggja fram sýnar eigin tillögur á þeim tíma.
Reglunefndin skal birta tillögur eins og þær berast nefndinni á vefsíðu KK ekki seinna en 15 janúar
Nefndin skal skipuð minnst 3 og ekki fleirum en 5 mönnum ,sem ekki sitja við stjórn KK á því tímabili,völdum af stjórn klúbbsins til tveggja ára í senn.Það skal vera opinbert hverjir sitja í nefndinni hverju sinni.
Í nefndinni eru allir jafnir, enginn formaður eða slíkt.
1 Febrúar skal í síðasta lagi vera búið að halda fund með keppendum um reglubreytingarnar sem nendin ætlar að leggja fyrir aðalfund,eftir fundinn er ekki hægt að draga tillögur til baka.
20 febrúar eða minnst einni viku fyrir aðalfund skal svo birta á endanlegar tillögur á vef Kvartmíluklúbbsins.
Þær tillögur sem nefndin samþykkir þarf svo að kjósa um á aðalfundi
Það sem að er með rauðum stöfum er lagt til að verði tekið út eða breytt/umorðað.
Hér kemur greinin eins og lagt er til um breytingar:
Því sem að hefur verið breytt er með grænum stöfum.
7. gr. Breytingar á lögum félagsins má aðeins gera á aðalfundi félagsins. Til að breytingar á lögum félagsins nái fram að ganga þarf, minnst, atkvæði 2/3 hluta mættra félagsmanna. Auglýsa skal tillögur að lagabreytingum í fundarboði til aðalfundar.
7. 1. Ef um ónóga fundarsókn er að ræða skal stjórnin hafa rétt til ákvörðunar á framhaldsaðalfundi viku síðar og telst sá fundur lögmætur óháð fundarsókn. Ónóg fundarsókn til aðalfundar telst vera 20 félagsmenn og færri.
7.2. Breytingar á keppnisreglum skal gera á sérstökum almennum fundi sem að skal haldinn í Nóvember ár hvert að loknu keppnistímabili. Skila skal inn reglubreytingatillögum fyrir fund samkvæmt auglýsingu frá tækninefnd. Þegar nýr flokkur hefur verið samþykktur eða flokki hefur verið breytt skulu reglur í honum standa óhreyfðar næstu þrjú árin. Þetta á ekki við um öryggisreglur sem að tækninefnd á að sjá um uppfærslu á fyrir alla flokka allt árið um kring eða útreikning á kennitímum (index). Breytingar á öryggisreglum skal birta opinberlega eigi seinna en viku eftir að tækninefnd hefur samþykkt þær. Þær breytingar sem kunna að vera gerðar á keppnisreglum skal birta eigi seinna en í Janúar ár hvert og skulu liggja frammi á aðalfundi félagsins.
7.3. Stjórn Kvartmíluklúbbsins skal skipa fimm hæfa einstaklinga til eins árs í einu í tækninefnd sem á að sjá um öryggis og keppnisreglur auk þess að boða til almenns fundar um reglubreytingar í Nóvember á hverju ári, og birta síðan breytingarnar eigi síðar en í Janúar árið eftir. Tækninefnd skal einnig halda saman öllum öryggis og keppnisreglum klúbbsins og uppfæra þær sem og vera í sambandi við öryggisnefnd og reglunefndir ÍSÍ sem og erlendar tækni/reglunefndir. Tækninefndin skal vera opinber og skal vera tiltæk til að gefa upplýsingar og svara spurningum þegar og ef óskað er eftir. Keppnisstjórar og keppendur skulu geta leitað til nefndarinnar vegna ágreiningsmála sem kunna að koma upp.
7.4. Tækninefnd skal tilnefna skoðunarmenn Kvartmíluklúbbsins fyrir hvert keppnistímabil og þjálfa þá til starfans. Nefndin skal einnig koma að þjálfun starfsfólks við keppnisbraut. Nefndin gerir líka verklagsreglur er varða skoðun keppnistækja.
Ef að það eru einhverjar spurningar þá endilega póstið þeim inn. :!:
Kv.
Hálfdán Sigurjónsson. :roll:
Einar K. Möller:
Ég tek undir þetta allt...nema... það á ekki að frysta flokkareglur, ef einn finnur aðferð til að dómínera flokkinn í 3 ár er þetta orðið ansi ósanngjarnt fyrir restina... flokkareglum á breyta með flæðinu svo allir eigi séns og eigi möguleika á að breyta... finnst mér.
Kristján Skjóldal:
ég held reindar að það sé sama hvernig flokkareglur eru það mun alltaf henta einhverjum 1-3 betur en hinum :idea:nema þetta verði bara eins og F1 í dag allir með eins græjur =; :D
maggifinn:
Þetta er flott. Orð í tíma töluð =D>
Ingó:
Það er mitt álit að reglubreytingar eiga ekki heima í lögum KK hvað þá að það eigi að leggja reglur fyrir félaga í KK. Ég tel reitt að það sé reglunefnd sem starfa á sjálfstætt en þó undir stjórn KK. Flokkareglur og flokkakerfið sem keppt er eftir ætti að vera alþjóðlegt ef kostur væri á því. Það ætti að vera hægt að treysta reglunefndinni að koma einungis með skinsamlegar breytingar til bóta fyrir KK með það að markmiði að fjölga keppendum og jafna leikinn eins og kostur er.
Það er mín reynsla eftir að starf í reglunefnd að þegar það kemur að því að ræða þær hugmyndir af breytingum sem nefndin telur æskilegar við keppendur þá hafa allir mismunandi skoðanir og varla hægt að finna tvo menn með sömu skoðun enda leifi ég mér að efast um að keppendur hafi eitthvað að segja um reglur í auðrum löndum. :D
Ég tel að þessar breytinga tillögur með að það sé sér fundur með keppendum um reglubreytinga alveg út í hött og að það gefi tilefni til þess að smala mönnum og ná fram sér hagsmunum eins og dæmi eru um. Það er ekki heldur rétt að festa reglur til þriggja ára ef það koma fram gallar í nýjum reglum. :shock:
Það væri til bóta að reglunefnd sæi alfarið um reglur. =D>
Kv Ingó.
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version