Ég á einn Ford Fairmont og mér finnst þetta ekki vera spennandi bílar heldur. En þeir sem eru hrifnir af Fox-body ættu að dáðst af þeim þar sem þetta er forfaðirinn, firsti fox-body bíllinn og það passar nátturulega flest úr krami og undirvagni á milli og því auðvelt að koma þeim soldið úr sporunum ef menn vilja. Mig hafði alltaf langað í Amerískan V8 aftur eftir að hafa átt Novu concors 77 sem firsta bíl og þegar að mér bauðst þessi hræódírt þá stökk ég á hann. Ég hefði betur beðið eftir að finna GM bíl því þegar maður var byrjaður að rífa, tæta og gera við allt að mér fanst kom eðli Ford í ljós. Maður hugsaði með sér HVAÐ ANNAÐ GÆTI BILAÐ þá var fairmontinn fljótur með svar.....................ÞETTA! 'Eg ætla nú samt að eiga hann áfram og reina í framtíðini að fjölga básum í hesthúsinu og hver veit nema maður gangi í klúbbinn einhvern tíma og fari nokkrar ferðir út brautina á þessu ef hann helst í gangi einhver tíma. Kveðja: GM maður með fráhvarfseinkenni