Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
camaro 1982
trommarinn:
maður spyr sig hvað er í gangi hér.....
jú innréttingin á að verða svört! Gólfið var ekkert riðgað, samt ryðbætt einhverntíman, þannig ég skellti einu þunnu lagi af svartri málningu á það.
318:
ætlaru að fá þér nýja hluti í innréttinguna eða skipta bara um lit á þessum gömlu?
rakst á mynd sem ég tók af honum í sumar, ég verð að fá að taka hann í almennilega myndatöku næsta sumar :mrgreen:
trommarinn:
ég læt bólstra fyrir mig sætin, hurðaspjöld, mælaborð og topp. Ég mála plöstin svo sjálfur svört.
Takk fyrir myndina :D
Nonni:
Hefurðu athugað hvort það sé ekki ódýrara að fá þér sæti úr 4th gen í hann? Ég keypti (þegar dollarinn var ca. 60 reyndar) sæti úr 2002 Transam, ebony/svört með rafmagni í öllu og loftpumpum. Þau kostuðu þá um 100 þúsund komin heim. Þau passa beint í sömu festingar og rafmagnið er mjög auðvelt að tengja (minnir að það hafi bara verið +). Jafnvel einhver sæti til heima ef vel er leitað.
Færð örugglega betri sæti með að kaupa 4th gen sætin (svo er spurning hvort er ódýrara).
trommarinn:
Þetta eru nefninlega vinnuskipti, hann gerir þetta fyrir mig og ég vinn fyrir hann.
Pantaði af ebay í gær grant chevy stýri og millistykki.
Svo í vetur var ég að pæla að blæða í blöndung, er ekki viss með stærð og tegund...einhverjar hugmyndir? var samt að pæla í edelbrock 600cfm, partanúmer 1406...
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version