Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur
Íslandsmeistarar - Lokahóf - færð þú viðurkenningu.....
Hera:
Mig langar til að byrja á að þakka BA mönnum fyrir bikarinn :wink:
Ég er hinsvegar alveg að týna þessu???
Bikar með BA merkinu? ég hef aldrey keppt fyrir BA eða undir því merki.
Nú BA menn keppa ekki undir KK merkinu en hafa fengið bikara með KK merkinu??
Nú svo veit ég að kk er ekki aðili að LÍA (nýja félagið ekki en komið á lappirnar) á KK að vera með undir LÍA??
Nú mótorhjó eiga heima undir MSÍ (sem er þeirra LÍA) en keppa ekki undir LÍA.
Nú svo í bónus hver borgaði bikarana?? var það BA sem lagði út fyrir hönd LÍA? á ekki sérsambandsmerkið að vera á bikurunum?? og þeirra kostnaður??
Mér finnst þetta allt vera í svona einum hræri graut og engin veit neitt.
Ég hefði haldið að MSÍ ætti að kosta hjólabikarana og LÍA bílana, en nú er auk þess komið frá BA og svo fær maður kanski einn frá KK og svo sækir maður bara um að MSÍ smíði líka...... :roll:
Talandu um kvennahlaupið ég get greinilega safnað 3 fyrir 1 :lol:
Ekki taka þessu ílla einn né neinn en finnst fólki ekki að þetta sé svolítið skrítið.
Svona eins og F1 færi að verðlauna heimsmeistaran með merki BMW á eða álíka :lol:
og ef BA borgaði að þá hafi það verið eins og BMW hafi borgað #-o
Nú svo eins og með hjólin þá er þetta eins og að F1 myndi verðlauna Rallýið :lol:
Jaja nóg í bili en ef einthver veit hvernig þetta á að vera örugglega eða hefur hugmyndir um hvernig þetta ætti að vera eða finnst þetta bara skrítið endilega comentið.
Dodge:
Já það eru ýmis atriði..
Eru einhverstaðar til peningar með merki KK og/eða "Akstursíþróttanefndar ÍSÍ"?
Svo er nú málið að BA er með einn mann í þessari blessuðu nefnd og hann er varamaður,
en hefur þrátt fyrir það þurft að vinna merkilega mykið fyrir þetta batterí t.d. sá viðkomandi
(ásamt fleiri BA mönnum) alfarið um að halda þetta hóf, restin af nefndinni mætti ekki nema Palli
(hugsanlega 1 í viðbót en ég mundi ekki veðja á það) og þar af leiðandi þótti BA kannski eðlilegt
að renna yfir nokkra liði sem almennt eru á okkar lokahófum.
Hvað peningana á bikurunum varðar hef ég trú á því að enginn hafi boðið fram aðstoð sína til að útvega
önnur merki og þegar allt kom til alls sat sá sem þurfti að sjá um allt klabbið uppi með þann
möguleika einann að nota það sem til er þ.e. BA peninginn.
Allt er þetta nú bara minn grunur um ástand mála, og mér þótti þetta fínasta hóf.
Sumir eru bara háðir því að röfla... sjá hér að ofan í einni línu drullað yfir ógnar fjölda ýmissa verðlauna
og svo í næstu setningu spurt um fleiri verðlaun..... :D
lobo:
Ég var að mæta á þetta lokahóf ekki lokahóf hjá BA !!!
Fréttir
Lokahóf akstursíþróttanefndar ÍSÍ
laugardagur 25.október 2008 - Lestrar 75
Lokahóf akstursíþróttamanna verður haldið á Akureyri í ár og fer að sjálfsögðu fram í Sjallanum - eins og góðu hófi sæmir. Dagsetningin er 25. október sem er fyrsti vetrardagur. Þarna verða afhentir allir íslandsmeistartitlar fyrir árið í ár ásamt sérstökum viðurkenningum fyrir þá sem starfað hafa í þágu akstursíþróttanna í ár.
Akstursíþróttamaður ársins verður einnig tilnefndur og nú í fyrsta sinn í mörg ár úr röðum allra greina er starfa undir lögum FIA hér á landi.
Það er algjört möst fyrir þá sem hafa hug á því að mæta að skrá sig í síma 892-3393 eða á ba@ba.is taka frá borð fyrir "crewið" sitt og fagna árangri sumarsins.
Greiðsla miða skal fara fram á 0565-26-580 kt. 660280-0149
Kristján Skjóldal:
vá hvað þú á bátt #-o hvað er málið :!: þú fékkst þín víðurkenigu ekki satt :!: væla hér útaf einhverju BA merki :???:eigum við að ræða eitthvað verðlauna mál eða =; td fékk mc maður hér fyrstu verðlaun frá KK mertur hjól og það er ekki fyrsta eða eina dæmið og svo kemur LiA þessu ekkert við á neinn hátt. það snúast ekki allir akstursatburðir bara um þig [-X allir sem ég hitti þarna og eftir voru bara mjög sátti nema kanski þegar þetta djö diskó fór á stað með þessum þvílíka hávaða að ekki var leingur hægt að tala saman :-# ps ef þú ert svona ó sáttur við þetta BA merki þá fjarlægðu það bara. :D
lobo:
Þetta átti að vera lokahóf akstursíþróttanefndar ÍSÍ og auglýst þannig. Ég persónulega hef ekkert á móti BA og mér er skítsama um einhverja bikara. En þau lokahóf sem ég hef farið á snúast bara um akstursíþróttakeppnir og keppendur, ekki klúbba !!!! En hjólafólk hefur verið svoldið utangáttar í félagaruglinu ( msí, ísí, kk, ba, fim, fía og bla bla ) hvað varðar spyrnukeppnir og það held ég að sé aðlapunkturinn. Það er allavega það sem ég er að heyra hjá nýliðum í þessu sporti.
Ef að það á að gera keppnishaldið aðlaðandi fyrir nýliða þá þarf að gera eitthvað í málunum !!!
Navigation
[0] Message Index
[*] Previous page
Go to full version