Já, sama kjánalega drifið er í honum. Er að spá í að fara í 3.73, ætti að gera hann skemmtilegri. Svo er ég jú að stefna á GTA kitt á hann, sprauta hann í einhverjum skemmtilegum lit, og líka nýtt húdd.
Svo verður eitthvað kíkt á mótorinn í leiðinni, kemur í ljós hvað verður gert þar. Hitt gengur þó fyrir, til að byrja með.
Hvenær tókstu samt þessar myndir af honum? Mátt svo sem alveg pósta þeim ef þig langar, vantar eiginlega fleiri myndir af greyinu.