Author Topic: Turbo pælingar  (Read 2916 times)

Offline Öddi

  • In the pit
  • **
  • Posts: 88
    • View Profile
Turbo pælingar
« on: September 29, 2008, 14:05:17 »
Sælt veri fólkið.
Ég er með 2,4 L (bensín) toyotu vél inná gólfi hjá mér sem mig langar til að dunda mér í hægt og rólega og koma á hana túrbínu.(eða supercharger eftir því hverju menn mæla með)
Er ekki einhver með viti sem getur gefið mér lista yfir það sem ég þarf að versla í mótorinn til að styrkja hann þannig að hann þoli bústið frá bínunni, og eins væri gott að fá linka á síður þar sem væri hægt að versla það sem þarf.
(ég veit að þetta svarar sennilega ekki kostnaði en ég hef ekkert að gera með þessa vél og langar til að leika mér aðeins með hana)
Ég er ekki með neinar fastar hestaflatölur eða torquetölur sem ég ætla að ná úr þessum mótor enn öll ráð eru vel þegin.
Þetta er mótor sem mig langar til að koma ofaní hi-luxinn minn einhverntímann í framtíðinni þannig að ég er ekkert að flýta mér.
Eins vantar mig allar upplýsingar um hluti sem ég þarf að versla utaná mótorinn til að klára dæmið eins og tölvu,bensíndælu,cooler og þess háttar.
Þetta er verkefni sem á að taka svona sæmilega langan tíma þar sem ég er ekkert að flýta mér enn ég hef bara ekki nógu mikið vit á því sem ég þarf að versla til að láta þetta ganga upp þannig að öllum ábendingum og ráðum verður tekið með opnum örmum.
Það er alltaf gaman að læra eitthvað nýtt þannig að svör með einhverju viti væru vel þeginn.

Kv Öddi

P.S. Eins ef einhver hér á einhverja góða nýtanlega hluti sem ég gæti notað í þetta project væri gott að vita af því.
« Last Edit: September 29, 2008, 14:13:11 by Öddi »

Offline gstuning

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 356
    • View Profile
Re: Turbo pælingar
« Reply #1 on: September 30, 2008, 18:46:37 »
http://www.google.co.uk/search?client=firefox-a&rls=org.mozilla%3Aen-US%3Aofficial&channel=s&hl=en&q=turbo+faq&meta=&btnG=Google+Search

Kíktu á eitthvað af þessum linkum og reyndu að fá smá mynd á það sem þú þarft að gera.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson -Dyno Dynamics-
Dyno Time 34h |

Offline ÁmK Racing

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 679
    • View Profile
Re: Turbo pælingar
« Reply #2 on: September 30, 2008, 20:09:49 »
Það er til svona keflablásari á 2.4l Toyotu mótor í Keflavík Gunni Trúður á hann eða allavega átti.Kv Árni Kjartans
Camaro 92 632 cid.
  Fljótasti Door Slammer á landinu.
Camaro Z28 84 355 cid
Árni Már Kjartansson.

Offline Öddi

  • In the pit
  • **
  • Posts: 88
    • View Profile
Re: Turbo pælingar
« Reply #3 on: October 07, 2008, 21:58:24 »
Takk fyrir svörin  :)
Er einhver með númer eða e-mail hjá þessum Gunna eða er hann skráður hér á spjallið?

Kv Öddi

Offline -Siggi-

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 202
    • View Profile
Re: Turbo pælingar
« Reply #4 on: October 10, 2008, 20:15:44 »
Það voru til nokkrir bílar með svona 2.4 Turbo hér heima.
Spurning hvort þetta sé ekki til einhverstaðar úrbrætt.
Ódýrast væri sennilega að grafa það upp og laga eða nota hluta af því dóti.
Sigurður S. Guðjónsson
Allar almennar bílaviðgerðir    694-3035 Bílavaktin www.bv.is
 - Cadillac CTS-V - Nissan 300ZX TT -

Offline ICE28

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 135
    • View Profile
Re: Turbo pælingar
« Reply #5 on: October 11, 2008, 18:38:16 »
Þessi blásari sem Gunni trúður á eða átti var einusinni í bíl sem ég eignaðist svo
Það var Toy Hilux með 340 Chrysler , en Gunni sagði mér að hann hafi verið búinn að prófa hana með 2.4 og blásara og hafi komið ágætlega út.

En 340 betur ;)
Kv. Karl Hermann
Kalli@kopasker.is
849-2579