hahahahahahahaha
http://visir.is/article/20080927/LIFID01/224309061/-1Tæplega þrítug móðir úr Reykjanesbæ hafði samband við Vísi í gær en hún segist afar ósátt við starfsfólk verslunarinnar Góða hirðisins.
Móðirin fór með 7 ára dóttur sína í verslunina keypti þar handa henni kvikmyndina Grease. Sagði henni að Grease væri kvikmynd sem allir þyrftu að horfa á.
Þegar heim var komið fór stúlkan að horfa á kvikmyndina með ungri frænku sinni. En þegar frænkurnar settu myndina í gang birtist ekki aðtriði úr Grease. Á skjánum birtist í staðinn atriði úr grófri klámmynd.
Sem betur fer náði amma stúlknanna að stökkva til og slökkva á myndinni
en þegar hún fór að kanna málið kom í ljós að á spólunni var gróf klámmynd í fullri lengd. Ekkert atriði úr Greasa var þar að finna.Móðirin segir að dóttir sín og frænka hennar séu miður sín en sjálf segist hún öskureið.