Heyrðu hann hefur lítið breyst útlitlega, á bara að vera farinn að virka almennilega nema hvað að hann vill ekki í gang
Málið er að hann fór í gang en byrjaði svo að ganga illa, og loks steinhætti hann bara að ganga.
Hann fær engann neista, það er búið að skipta um box og háspennukefli og það breytti engu, vandamálið er annaðhvort í kveikjunni sjálfri eða ég hef einhvað verið of grófur í því að grysja lúmið í honum.
Ég er bara orðinn hundleiður á honum og hann fer aldrei á götuna með þessu áframhaldi, vantar einhvern til að grúska í honum svo maður geti farið að hafa gaman af þessu aftur.
Annars setti ég nýja vél í hann, tók grindina og fjöðrunina í gegn, já og stýrisbúnaðinn. Þetta verður vonandi ögn ökuvænna núna hehe
Þið sem kunnið á þetta og hafið gaman af eigið bara eftir að hafa gaman af því að kíkja í skúrinn hjá mér og pota einhvað í hann, vitið þið til, það er heitt á könnunni