Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur

Aðalreglur kvartmíluklúbbsins

<< < (5/5)

429Cobra:
Sælir félagar. :)

Sæll Anton.

Engin vörn, þú féllst á prófinu. [-X
Fáðu þér einn öl og lestu aftur. :bjor:

Kv.
Hálfdán. :roll:

baldur:
Vissulega stendur ekkert þarna um hversu langt pústið á að ná, bara að það eigi að vísa frá boddýi (niður eða út til hliðar og aftur)

Það er samt sumt í þessum reglum sem kemur mér furðulega fyrir sjónir, til dæmis það að kælikerfi eigi alltaf að vera staðsett fyrir framan vél!

--- Quote ---1:1 Kælikerfi: Ef kælikerfi er sérhannað skal það vera staðsett á sama stað og
upprunalegt kælikerfi í þeirri yfirbyggingu sem notuð er. Í grindarbílum með
vél fyrir framan ökumann skal kælikerfið vera staðsett fyrir framan vél. Ef
grindarbíll er með vél fyrir aftan ökumann skal setja hlífðarplötu, sem nær frá
grindarbita að grindarbita og að efsta punkti veltibúrs, ef vatnskassi er staðsettur
fyrir framan vél.
--- End quote ---

Einnig að vélar skuli vera bílvélar?!?!

--- Quote ---1:2 Vél: Allir flokkar eru takmarkaðir við bílvél aðeins.
--- End quote ---
Má þá ekki smíða dragster með hayabusa mótor eða kannski SBC frá Mercury eða VolvoPenta.
Falla mótorhjól ekki undir aðalreglurnar að neinu leiti?


--- Quote ---Eldsneytisleiðslur sem liggja á svæði kúplingshúss verða að liggja inn í
16”(40,64cm) löngu röri með 12”(1,27cm) veggþykkt, örugglega festu sem vörn
gegn bilun í eldsneytisleiðlum (á ekki við bíla sem keyrðir eru í almennri umferð
og skoðaðir af viðurkenndri skoðunarstöð, þó æskilegt).
--- End quote ---
Eitthvað lítur þessi veggþykkt undarlega út.

Úr eldsneytiskaflanum:

--- Quote ---Kæling eða annað sem
breytir hitastigi inntakslofts bannað.
--- End quote ---
Hvað þýðir þessi setning eiginlega?

Úr forþjöppukaflanum

--- Quote ---Notkunn á skrúfu forþjöppum
er takmörkuð við TAD og TAFC.
--- End quote ---
Jæja, búnaður sem margir bílar eru með frá framleiðanda og er vinsæll í götubíla takmarkaður við Top Alcohol Dragster og Top Alcohol Funny Car...


--- Quote ---Sjálfvirk bremsukerfi (raf eða
loftknúin o.s.f.) til að minka spól eru bönnuð.
--- End quote ---
Standard búnaður í nánast öllum fjöldaframleiddum bílum í dag.


--- Quote ---Ballest sem mælt er með: 1)
Þykkara gólf, þyngra stál. Þyngra stálgólf og/eða stálplata bönnuð.
--- End quote ---
Er þetta ekki mótsögn? Hvað þýðir þetta?

Navigation

[0] Message Index

[*] Previous page

Go to full version