Nú er ég gallharður fylgjandi wiki síðna á meðan þær eru ekki misnotaðar, og td má nota þessa í helling af hlutum...halda utanum met og árangur manna/bíla, halda utanum sögur bíla og margt fleira í þeim dúr... EN þetta þarf ekki að vera forsíðan. Væri ekki nær að setja upp bara plain forsíðu sem sýnir að þetta sé síða kvartmíluklúbbsins og svo linka inn wiki síðuna svipað og spjallið? þannig væri td hægt að vera með einfalda en flotta forsíðu, og jafnvel fá auglýsingar á hana og þannig til að auka tekjur klúbbsins...bara hugmynd.
Kveðja
Halldór K